Innlent

Fór huldu höfði á landinu í sam­tals tvö ár

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Manninum hafði áður verið vísað úr landi en kom aftur með breytt eftirnafn.
Manninum hafði áður verið vísað úr landi en kom aftur með breytt eftirnafn. Vísir

Hælisleitandi sem hafði farið huldu höfði í heilt ár fannst þegar lögregla hafði afskipti af honum vegna þjófnaðar í verslun við Tryggvagötu. Þá kom í ljós að hann hafði verið í felum á Íslandi tvisvar í samtals tvö ár yfir sex ára skeið. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn var staðfestur af Landsrétti í dag.

Maðurinn var handtekinn þann nítjánda febrúar síðastliðinn vegna gruns um þjófnað. Hann kvaðst ekki vera með skilríki og neitaði að gefa upp dvalarstað sinn hér á landi þegar lögreglumennt inntu hann eftir því. Hann var handtekinn og vistaður til að hægt væri að rannsaka málið frekar.

Sérútbúinn bakpoki til þjófnaðar

Við handtökuna var maðurinn með bakpoka með sér sem búið var að gera sérstakt „innvols“ í til að koma í veg fyrir það að þjófavörn færi í gang þegar gengið væri fram hjá öryggishliði verslana. Lögreglan lagði hald á töskuna í þágu rannsóknar málsins.

 Við rannsókn lögreglu kom svo í ljós maðurinn hefði sótt um hæli á Íslandi árið 2017 en umsókn hans synjað 2018 og átti að vísa honum úr landi.

Þá hafi maðurinn farið í felur og ekki fundist í rúmt ár þangað til að lögreglan hafði afskipti af honum vegna annars þjófnaðar í apríl 2019. Hann hafði ekki sinnt tilkynningarskyldu. Honum hafi verið loks vísað úr landi í nóvember 2019.

Kom aftur með nýtt nafn

Þrátt fyrir þetta kom maðurinn aftur til landsins og sótti um hæli á nýjan leik í janúar 2023. Þá hafði hann einnig breytt nafninu sínu. Hann var merktur „týndur/horfinn“ í kerfum Útlendingastofnunar og lögreglu í febrúar 2023 og fór huldu höfði á landinu til nítjánda febrúar síðastliðins þegar hann var handtekinn eins og kom fram.

Í gæsluvarðhaldskröfu sinni vísaði lögreglan til þess að maðurinn hefði áður komið sér undan brottvísunarskipunum. Einnig var vísað til þess að maðurinn hefði dvalið ólöglega hér á landi án þess að upplýsa yfirvöld um dvalarstað. Það sé því nauðsynlegt að hann sé úrskurðaður í gæsluvarðhaldi á meðan meðferð málsins hans stendur.

Í úrskurðinum er tekið undir það að maðurinn sé líklegur til þess að koma sér undan brottvísun og því sé gæsluvarðhald nauðsynlegt. Hann mun sitja í gæsluvarðhaldi fram til fimmta mars næstkomandi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×