Valur deildarmeistari Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. febrúar 2024 19:26 Thea Imani Sturludóttir var frábær í dag. Vísir/Vilhelm Topplið Vals sótti Stjörnuna heim í Olís-deild kvenna í handbolta. Fór það svo að gestirnir unnu fjögurra marka sigur og tryggðu sér þar með deildarmeistaratitilinn.
Stjarnan skoraði fyrsta mark leiksins en fyrsta stundarfjórðung leiksins var viðureign liðanna algjörlega stál í stál. Stjarnan sýndi allar sínu bestu hliðar sóknarlega í kjölfarið, komst tveimur og svo þremur mörkum yfir eftir að Valur hafði jafnað metin í milli tíðinni. Það er hins vegar ástæða fyrir að Íslandsmeistarar Vals eru á toppnum og skoraði liðið síðustu þrjú mörk fyrri hálfleiks sem þýddi að staðan var jöfn þegar liðin gengu til búningsherbergja, staðan þá 17-17. Valur skoraði fjögur fyrstu mörk síðari hálfleiks og lagði þar með grunninn að sigri kvöldsins. Stjarnan minnkaði muninn niður í tvö mörk en nær komust þær ekki. Munurinn var svo kominn upp í fjögur mörk þegar flautað var til leiksloka, staðan þá 27-31. Thea Imani Sturludóttir var markahæst í liði Vals með 9 mörk. Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði 6 mörk og Sara Sif Helgadóttir varði 15 skot í markinu. Hjá Stjörnunni skoraði Eva Björk Davíðsdóttir 11 mörk og Anna Karen Hansdóttir gerði fimm. Þá varði Darija Zecevic 16 skot í markinu. Valur er sem fyrr á toppnum, nú með 36 stig. átta meira en Fram og Haukar sem eru í sætunum fyrir neðan. Sigurinn gulltryggði deildarmeistaratitilinn en Íslandsmeistararnir eru til alls líklegir eftir að hafa unnið 18 af 19 leikjum sínum til þessa. Stjarnan er í 6. sæti og bullandi fallhættu með 9 stig. Fréttin hefur verið uppfærð.
Handbolti Valur Olís-deild kvenna Stjarnan Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira