„Ég er búinn að bíða eftir þessu mómenti mjög lengi“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2024 11:01 Martin Hermannsson á æfingu með íslenska landsliðinu í Laugardalshöllinni. Vísir/Vilhelm Þetta er stór dagur fyrir íslenska körfuboltalandsliðið og ekki síst fyrir Martin Hermannsson sem snýr í kvöld til baka í íslenska landsliðið þegar liðið mætir Ungverjum í Laugardalshöllinni í undankeppni EM 2025.
Leikurinn er gríðarlega mikilvægur í baráttu um sæti á þriðja Eurobasket móti íslenska landsliðsins frá upphafi. Það munaði mjög litlu að liðið kæmist á HM á síðasta ári en þá vantaði Martin. Martin hefur ekki spilað með íslenska landsliðinu síðan í febrúar 2022 eða síðan hann sleit krossband í hné. Þetta voru mjög erfið meiðsli og íslenski bakvörðurinn er enn ekki kominn yfir þau að fullu. Það er samt gott að sjá hann aftur í íslenska landsliðsbúningnum og á fjölum Laugardalshallarinnar. Hvernig er fyrir Martin að mæta aftur? „Það er bara geggjað. Ég er búinn að bíða eftir þessu mómenti mjög lengi. Ég ætla ekki að vera með of mikla yfirlýsingar því það eru tveir dagar í leik og það getur allt gerst,“ sagði Martin í viðtali við Val Orra Eiríksson á þriðjudaginn. „Þetta er það skemmtilegasta sem maður gerir í þessu. Að hitta vini sína, koma heim, fá smá íslenskan mat, íslenska vatnið og allt þetta. Það er geggjað að vera kominn aftur,“ sagði Martin. Martin spilaði síðast fyrir íslenska landsliðið 24. febrúar 2022 og var þá með 23 stig og 7 stoðsendingar í eftirminnilegum sigri á Ítölum. „Það var einhver að segja að það væri tvö ár en mér líður ekki þannig. Það eru góðar minningar úr Ólafssal á móti Ítalíu. Ég held að það hafi verið síðasti leikur og vonandi getur maður endurtekið þann leik,“ sagði Martin. Það má horfa á allt viðtalið við Martin hér fyrir neðan. Klippa: Viðtal við Martin fyrir Ungverjaleik
Landslið karla í körfubolta EM 2025 í körfubolta Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Fleiri fréttir ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Sjá meira