Valsmenn rúlluðu HK-ingum upp að Hlíðarenda Smári Jökull Jónsson skrifar 21. febrúar 2024 21:10 Benedikt Gunnar Óskarsson var frábær hjá Val í kvöld. Vísir/Pawel Cieslikiewicz Valsmenn minnkuðu forskot FH á toppi Olís-deildarinnar niður í eitt stig eftir afar öruggan sigur á HK á heimavelli sínum að Hlíðarenda í kvöld.
Valur var þremur stigum á eftir toppliði FH fyrir leikinn í kvöld en HK sat í 10. sæti og er að berjast um sæti í úrslitakeppninni. HK byrjaði leikinn nokkuð vel og komst meðal annars í 7-5 forystu. Valsmenn jöfnuðu þó metin og staðan var 10-10 þegar tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Þá vöknuðu Valsmenn. Þeir unnu lokamínútur hálfleiksins 8-4 og leiddu 18-14 í hálfleik. Í síðari hálfleik keyrðu Hlíðarendapiltar síðan yfir Kópavogsbúa. Valur skoraði fyrstu fjögur mörkin í síðari hálfleik og forystan var orðin tíu mörk þegar sjö mínútur voru liðnar af hálfleiknum. Heimamenn héldu síðan áfram, þeir unnu síðari hálfleikinn 21-10 og leikinn 39-24. Öruggur sigur Vals staðreynd og Valur aðeins einu stigi á eftir FH sem þó á leik til góða. Benedikt Gunnar Óskarsson var magnaður í liði Vals með tíu mörk og átta sköpuð færi. Ísak Gústafsson skoraði sjö mörk og Arnar Þór Fylkisson fékk tækifærið í markinu og greip það heldur betur. Hann varði sextán skot í markinu eða rúmlega 40% þeirra skota sem hann fékk á sig. Hjá HK var Kári Tómas Hauksson markahæstur með átta mörk og Sigurjón Guðmundsson varði tíu skot í markinu.
Olís-deild karla Valur HK Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Fleiri fréttir Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Sjá meira