Handbolti

Endur­­­galt traustið með bombu innan vallar

Aron Guðmundsson skrifar
Arnór Snær Óskarsson er byrjaður að láta til sína taka hjá Gummersbach þar sem að hann spilar undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar.
Arnór Snær Óskarsson er byrjaður að láta til sína taka hjá Gummersbach þar sem að hann spilar undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar. Mynd: Gummersbach

Eftir mánuði þjakaða af litlum spila­tíma á sínu fyrsta tíma­bili í at­vinnu­mennsku, minnti hand­bolta­maðurinn Arnór Snær Óskars­son ræki­lega á sig í fyrsta leik sínum með Ís­lendinga­liði Gum­mers­bach á dögunum í þýsku úrvalsdeildinni.

Arnór Snær var, í síðustu viku, fenginn á láni til Gum­mers­bach í þýsku úr­vals­deildinni út yfir­standandi tíma­bil frá R­hein Neckar-Löwen sem spilar í sömu deild.

„Það var þarna á einum tíma­punkti í janúar fyrr á þessu ári sem um­boðs­maðurinn minn heyrir í mér og spyr mig hvernig mér líður hjá Löwen og allt það. Hann lætur mig svo vita af því að Gum­mers­bach vildi fá mig á láni,“ segir Arnór Snær í samtali við Vísi.

„Ég þurfti nú að­eins að hugsa mig um þegar að ég fékk þær fréttir. Vegna þess að mér leið bara rosa­lega vel í Löwen þrátt fyrir að ég væri að spila minna en ég bjóst við. Ég vissi svo sem að fyrsta ár mitt í at­vinnu­mennskunni færi mikið í að læra. 

Svo er Tobias Reichmann fenginn inn til liðsins í upp­hafi árs og þá erum við í rauninni orðnir fimm leik­menn að berjast um sömu stöður.“

Frammistaða Arnórs Snæs hér heima með meistaraliði Vals sá til þess að Rhein Neckar-Löwen sótti hann þaðan.Twitter@RNLoewen

Þá fór ég að hugsa hvort þetta væri kannski bara réttur tími til þess að fara á láni. Hvort það væri í raun ekki bara gott fyrir báða aðila. Ég talaði við þjálfarann minn hjá Löwen. Hann vildi að­eins bíða og sjá hvernig Pat­rick Groetzki kæmi til baka úr meiðslum og Niclas Kirkelokke kæmi inn eftir EM.

Svo sjáum við það eigin­lega bara báðir að þessi láns­samningur væri góður fyrir báða aðila. Ég fengi tæki­færi til þess að sýna mig meira í þýsku deildinni og Löwen fengi að sama skapi að sjá mig spila.“

Engin eftirsjá með fyrsta skrefið

Þú hefur ekkert verið farinn að sjá eftir því að hafa samið við Rein Neckar-Löwen á sínum tíma í ljósi lítils spila­tíma?

„Auð­vitað vill maður alltaf spila en svo er liðið bara með frá­bæra leik­menn á mála hjá sér. Groetzki er frá­bær í horninu og bæði Kirkelokke og Jon Lind­enchrone hafa verið að spila frá­bær­lega. Það er rosa­lega erfitt að vera eitt­hvað að fara kvarta í þessari stöðu. 

Maður reyndi bara að nýta öll tæki­færin, sem maður fékk á æfingum sem og innan vallar í leikjum liðsins, til þess að reyna vinna sig meira inn í liðið. 

Auð­vitað er það erfitt þegar að aðrir eru að spila frá­bær­lega. Maður reyndi bara að vera þolin­móður og beið þangað til að sitt tæki­færi kæmi.

Svo þegar að það kemur svona tæki­færi, að skipta yfir til Gum­mers­bach og við erum orðnir fimm þarna í sömu stöðu hjá Löwen, þá er kannski bara fínt að skipta að­eins um um­hverfi, prófa að spila meira og sýna sig fyrir öðrum.“

Ætla má að vaskleg framganga Arnórs Snæs með Val í Evrópudeildinni á síðasta tímabili hafi varpað miklu kastljósi á hann frá liðum erlendis frá. vísir/Diego

Guðjón Valur hafði mikið að segja

Og væntan­lega stór já­kvæður punktur í þessum skiptum að vera fara í lið sem er með ís­lenskan þjálfara eins og Guð­jón Val Sigurðs­son?

„Það hjálpar rosa­lega mikið af hafa ís­lenskan þjálfara, hvert sem maður fer. Við erum búnir að tala mikið saman og hann hefur hjálpað mér gríðar­lega mikið við að koma mér inn í hlutina hér fljótt og örugg­lega. Það spilaði mikið inn í þessi skipti mín að Guð­jón Valur er hérna sem þjálfari.“

Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar Gummersbach.vísir/Getty

Skipti Arnórs áttu sér stað með smá að­draganda en hann þurfti þó að hafa hraðar hendur þegar að þau loks fóru í gegn.

„Ég fór til Pól­lands með Löwen að keppa í Evrópu­keppninni. Við komum til baka til Þýska­lands á mið­viku­deginum í síðustu viku, ég keyri beint til Gum­mers­bach daginn eftir og næ þremur æfingum áður en haldið er í leikinn gegn Leipzig núna á mánu­daginn síðast­liðinn.“

Byrjar á bombu

En það var ekki að sjá að Arnór væri að læra inn á nýju liðs­fé­laga sína og leik­kerfi sett upp af þjálfara liðsins, Guð­jóni Val Sigurðs­syni. Arnór fór á kostum í leiknum sem var gegn öðru Ís­lendinga­liði, Leipzig sem þjálfað er af Rúnari Sig­tryggs­syni.

Leikurinn endaði með eins marks sigri Gum­mers­bach. Arnór skoraði sex af mörkum liðsins og gaf tvær stoð­sendingar.

Þessir fyrstu dagar þínir í Gum­mers­bach ganga eins og í sögu.

„Já. Þetta hefur gengið bara ó­trú­lega vel. Strákarnir eru bara virki­lega skemmti­legir og hafa hjálpað mér mikið við að komast inn í kerfin. Svo reynir maður bara að koma sér inn í flæðið með liðinu, leyfir leiknum að koma til sín og þá er þetta fljótt að gerast. Þetta snýst bara um þolin­mæði og ró.

Byrjunin mjög góð í fyrsta leik þínum með liðinu. Hvernig var að halda inn á völlinn í treyju Gum­mers­bach?

„Það var smá stress í manni fyrst. Ég get alveg viður­kennt það. Maður vildi ólmur sýna sig fyrir öllum en á sama tíma ekki gera of mikið í byrjun. Svo þegar að maður nær að láta þetta koma til sín, skorar úr fyrsta skotinu, þá ein­hvern veginn fer allt stress frá manni, maður verður tíu kílóum léttari og liðs­fé­lagarnir spiluðu virki­lega vel upp á mig. 

Ég var heppinn með þennan leik. Bara ó­geðs­lega gaman. Þetta var skemmti­legur leikur, bæði fyrir á­horf­endur og mig. Að byrja á svona spennandi leik og vinna síðan. Ó­geðs­lega skemmti­legt.“

Góður þjálfari með skýra sýn

Sem fyrr segir er Guð­jón Valur Sigurðs­son, ís­lensk hand­bolta­goð­sögn, þjálfari Gum­mers­bach. Við Ís­lendingar þekkjum hann vel sem leik­mann en hvernig þjálfari er Guð­jón Valur að mati Arnórs Snæs?

„Hann er góður þjálfari, agaður með skýra sýn og nær að draga það besta fram í mönnum. Það er alveg ljóst að leik­menn eru til í að berjast fyrir hann og hann gefur leik­mönnum einnig oft á tíðum tæki­færi á að taka stjórnina. Hann er bara virki­lega flottur.“

Guðjón Valur Sigurðsson ræðir við leikmenn sína á æfingu Gummersbach.mynd/@vflgummersbach

Er hann mikill maður á mann þjálfari?

„Já, bæði í hóp og svo tekur hann menn til hliðar ef hann vill fara yfir eitt­hvað sér­stakt með þeim.“

Lét nægja að tuða í pabba

Eftir lítinn spila­tíma á fyrsta ári sínu í at­vinnu­mennsku hefði margur skilið það ef Arnór Snær væri ó­sáttur. Hann er hins vegar með skýra sýn á sinni veg­ferð. Var auð­vitað ekki, líkt og allir aðrir leik­menn myndu vera, sáttur með að spila lítið en kýs að horfa á stóru myndina.

„Löwen er stórt fé­lag, þrátt fyrir að hafa að ein­hverju leiti verið að ganga í gegnum smá lægð. Maður var ekkert að fara labba inn í þetta lið og spila fjöru­tíu og fimm til sex­tíu mínútur í hverjum leik. Við vorum búnir að ræða þetta, ég og þjálfarinn, hvernig þetta yrði. Ég var því alveg pollró­legur yfir stöðunni. 

Auð­vitað verður maður pirraður þegar að maður er ekki að spila, fer að tuða í pabba og svona, en svo verður maður bara að vera ró­legur. Þetta er bara fyrsta árið í at­vinnu­mennsku. Maður þarf að læra inn á þetta og taka eitt skref í einu.“

Handboltinn er Arnóri í blóð borinn. Faðir hans er Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals sem einnig er aðstoðarmaður Snorra Steins Guðjónssonar með íslenska landsliðiðVísir/Einar

Lærdómsríkur tími

En hvernig hefur bara verið að fóta sig í þýsku sam­fé­lagi?

„Þetta er búið að vera öðru­vísi upp­lifun. Maður er að búa í fyrsta skipti einn, kaupa inn í matinn, reyna að elda og allt fram eftir þeim götunum. Maður er hins vegar kannski ekki sá dug­legasti í því að elda.

Þetta er búin að vera mjög lær­dóms­ríkur tími til þessa. Skemmti­legt og gaman að prófa sig á­fram í þessu þó svo að á sama tíma sakni maður kærustunnar og fjöl­skyldunnar heima. Þau eru dug­leg að hvetja mann á­fram.“

Sá yngri líka á leið út

Yngri bróðir Arnórs, Bene­dikt Gunnar, er á leið út í at­vinnu­mennsku í fyrsta sinn eftir yfir­standandi tíma­bil eftir að hafa samið við norska stór­liðið Kol­stad og mun Arnór geta gefið honum góð ráð hvernig á að fóta sig.

„Við heyrumst reglu­lega og ég mun pott­þétt reyna að gefa honum ein­hverja punkta. Gauka kannski að honum ein­hverjum upp­skriftum þegar líður á,“ svarar Arnór hlægjandi. „Hann á eftir að plumma sig vel þarna úti í Noregi og er með Sig­valda Björn með sér í Kol­stad. Þetta verður bara gaman hjá honum.“

En hvernig lítur Arnór Snær á restina af yfir­standandi tíma­bili hjá Gum­mers­bach og komandi skref í at­vinnu­mennskunni?

„Nú er bara að gleyma fyrsta leik með Gum­mers­bach, mæta af fullum krafti í þann næsta og reyna gera eins vel. Leyfa þessu að koma til sín, vinna leiki og reyna njóta þess að spila. Spila eins mikið og ég get og styrkja mig í leiðinni. Gum­mers­bach er ekki í Evrópu­keppni eins og Löwen. Ég get því farið meir í lyftingar­salinn. Svo er það bara að klára láns­samninginn hér og mæta aftur til Löwen eftir tíma­bilið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×