Fótbolti

Genoa muni ekki hlusta á til­boð í Albert undir fimm milljörðum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Albert Guðmundsson virðist ætla að verða eftirsóttur biti í sumar.
Albert Guðmundsson virðist ætla að verða eftirsóttur biti í sumar. Simone Arveda/Getty Images

Andres Blazquez, framkvæmdastjóri ítalska félagsins Genoa, segir að félagið muni skoða það að selja íslenska landsliðsmanninn Albert Guðmundsson frá félaginu ef tilboð upp á 35 milljónir evra berst í leikmanninn.

Albert hefur verið algjör lykilmaður í liði Genoa á tímabilinu þar sem hann hefur skorað níu mörk og gefið tvær stoðsendingar í 22 leikjum.

Um tíma leit út fyrir að Albert gæti verið á leið til Fiorentina í janúarglugganum, en að lokum varð ekkert úr því. Þá var talað um að Fiorentina væri ekki tilbúið að greiða uppsett verð fyrir Albert, sem á þeim tíma var talið vera um 30 milljónir evra. Nú er hins vegar ljóst að hann fer líklega ekki fyrir minna en 35 milljónir evra, sem samsvarar rétt rúmlega 5,2 milljörðum króna.

Ef marka má fréttir ítalskra miðla gæti Albert orðið eftirsóttur biti í sumar. Eins og áður segir reyndi Fiorentina að fá hann til félagsins í janúar og þá er einnig talið að lið á borð við AC Milan, Juventus, Napoli, Tottenham, Newcastle og West Ham séu að fylgjast með gangi mála hjá leikmanninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×