Fótbolti

Alexandra inn­siglaði sigur Fiorentina

Smári Jökull Jónsson skrifar
Alexandra Jóhannsdóttir skoraði í dag.
Alexandra Jóhannsdóttir skoraði í dag. Vísir/Getty

Alexandra Jóhannsdóttir var á skotskónum þegar lið Fiorentina vann sigur á Napoli í Serie A deildinni á Ítalíu í dag.

Fiorentina var í þriðja sæti ítölsku deildarinnar fyrir leikinn, átta stigum á eftir toppliði Roma og tveimur á eftir Juventus sem var í öðru sæti. Napoli var hins vegar í neðsta sæti með aðeins tvö stig eftir ellefu leiki og beið því enn eftir fyrsta sigrinum.

Hin spænska Veronica Boquete kom Fiorentina yfir í fyrri hálfleik og Michela Catena tvöfaldaði forystuna snemma í þeim síðari. Elisa del Estal minnkaði muninn úr vítaspyrnu fyrir Napoli en Miriam Longo kom Fiorentina aftur í tveggja marka forystu á 73. mínútu.

Napoli tókst aftur að minnka muninn þegar Alice Corelli skoraði á 80. mínútu en Alexandra hafði komið inn sem varamaður þremur mínútum áður.

Þegar þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma var það síðan Alexandra sem innsiglaði sigur Fiorentina sem þar með lyftir sér upp í 2. sæti deildarinnar, um stundarsakir að minnsta kosti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×