Fótbolti

Milik með sýningu þegar Juventus flaug inn í undan­úr­slit

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Arkadiusz Milik fagnar einu af þremur mörkum sínum í kvöld.
Arkadiusz Milik fagnar einu af þremur mörkum sínum í kvöld. Emilio Andreoli/Getty Images

Gott gengi Juventus á tímabilinu heldur áfram en liðið er komið í undanúrslit Coppa Italia, bikarkeppninnar á Ítalíu, eftir 4-0 sigur á Frosinone.

Heimamenn byrjuðu frábærlega en Arkadiusz Milik kom heimamönnum yfir með marki úr vítaspyrnu strax á 11. mínútu. Milik var svo aftur á feriðinni á 38. mínútu eftir undirbúning Weston McKenna, staðan 2-0 í hálfleik.

Milik fullkomnaði þrennu sína í upphafi síðari hálfleiks og hélt hann hefði komið Juventus í 4-0 þegar tæp klukkustund var liðin en markið dæmt af. Fjórða mark heimaliðsins kom þó örskömmu síðar þegar hinn 18 ára gamli Kenan Yıldız skilaði boltanum í netið.

Lokatölur 4-0 og þar sem Juventus er síðasta liðið inn í undanúrslitin þá er þegar ljóst að Lazio verður mótherji þeirra þar. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Fiorentina og Atalanta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×