Sport

Dag­skráin í dag: Jólasteik og NFL

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Kúrekarnir frá Dallas verða í eldlínunni í NFL-deildinni í amerískum fótbolta í kvöld.
Kúrekarnir frá Dallas verða í eldlínunni í NFL-deildinni í amerískum fótbolta í kvöld. Timothy T Ludwig/Getty Images

Sportrásir Stöðvar 2 bjóða upp á þrjár beinar útsendingar á sjálfum aðfangadegi jóla og koma þær allar úr heimi NFL-deildarinnar í amerískum fótbolta.

Við hefjum leik klukkan 17:45 á Stöð 2 Sport 3 með NFL Red Zone þar sem verður fylgst með öllum leikjunm kvöldsins á sama stað í sjö klukkustundir án auglýsinga. Tilvalið eftir jólasteikina.

Á Stöð 2 Sport 2 verður svo fylgst með tveimur leikjum í beinni útsendingu þegar Minnesota Vikings og Detroit Lions eigast við klukkan 17:55 og Miami Dolphins tekur á móti Dallas Cowboys klukkan 21:20.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×