Tap og fjórði marka­lausi leikurinn í röð hjá United

Jarrod Bowen fagnar marki sínu fyrir framan ánægða stuðningsmenn West Ham.
Jarrod Bowen fagnar marki sínu fyrir framan ánægða stuðningsmenn West Ham. Vísir/Getty

West Ham vann góðan 2-0 heimasigur á Manchester United í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar. United hefur nú spilað fjóra leiki án þess að skora mark.

Leikurinn í dag var ekki sá fjörlegasti. Ekkert mark kom í fyrri hálfleikinum og bæði liðin voru þétt fyrir varnarlega og náðu lítið að ógna marki andstæðinganna.

Síðari hálfleikur byrjaði á svipaðan hátt. Á 72. mínútu náði Jarrod Bowen hins vegar að brjóta ísinn fyrir West Ham. Hann fékk þá frábæra sendingu yfir vörn United frá Lucas Paqueta og náði að skora í annarri tilraun framhjá Andre Onana í markinu.

Mohammed Kudus fagnaði marki sínu á skemmtilegan hátt.Vísir/Getty

Skömmu síðar tvöfaldaði West Ham forystuna. Hinn ungi Kobbie Mainoo missti boltann þá klaufalega á eigin vallarhelmingi. Boltinn endaði hjá Mohammed Kudus sem var ekki lengi að nýta sér mistökin og skoraði með góðu skoti í fjærhornið framhjá Onana.

Leikmönnum United tókst lítið að ógna marki heimamanna það sem eftir var. Lokatölur 2-0 og West Ham fer því uppfyrir United í töflunni. Liðið er nú í 6 sæti með 30 stig en Untited með tveimur stigum minna í 8. sæti.

Þetta er fjórði leikurinn í röð sem liði Manchester United tekst ekki að skora. Liðið skoraði síðast mark þegar þeir mættu Chelsea þann 6. desember.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira