Sport

Dag­skráin í dag: Dagur sjö í Ally Pally

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Scott Williams verður í eldlínunni á sjöunda degi heimsmeistaramótsins í pílukasti.
Scott Williams verður í eldlínunni á sjöunda degi heimsmeistaramótsins í pílukasti. Vísir/Getty

Heimsmeistaramótið í pílukasti heldur áfram og nú er komið að sjöunda keppnisdegi mótsins.

Vodafone Sport 

Sjöundi dagur heimsmeistaramótsins í pílukasti verður á dagskrá frá 12:25 og langt fram eftir kvöldi. Hlé verður gert milli 18–18:55, útsendingu lýkur svo um miðnætti. 

Þá mætast Philadelphia Flyers og Nashville Predators í NHL íshokkídeildinni. Útsending hefst 00:05. 

Stöð 2 Sport

Söguáhugamenn fagna skemmtilegum endursýningum á hápunktum gamalla leikja úr úrvalsdeild fótbolta og körfubolta. 

Kl. 16:00 verður sýnt frá leik Stjörnunnar gegn KR þann 19. apríl 2011 í úrslitarimmu úrvalsdeildarinnar í körfubolta. KR-ingar gátu orðið Íslandsmeistarar í Ásgarði og tryggt sér þriðja titilinn á fimm árum. 

Kl. 16:35 verður sýnt hápunkta úr leik Stjörnunnar gegn Víkingi R. þann 14. maí 2018 í úrvalsdeildinni í fótbolta. Stjörnumönnum hafði mistekist að sækja sigur úr fyrstu tveimur umferðunum þegar þeir fengu Víkinga í heimsókn. Stórskemmtilegur leikur sem hafði allt til. 

Stöð 2 Sport 2 

20:00 – NFL Gameday: Hápunktar í NFL deildinni. 

20:30 – The Fifth Quarter: Markaþáttur ACB, spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. 

Stöð 2 eSport

18:50 – RLÍS Deildin: Bestu lið Íslands í Rocket League keppast um deildarmeistaratitilinn. Leikir kvöldsins eru Pushin P. vs Breiðablik, 354 eSports vs Þór, Suðurtak vs Víkingur Ólafsvík og LAVA Esports vs Breaking Sad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×