Albert kom í veg fyrir að Juventus kæmist á toppinn

Albert Guðmundsson í baráttunni gegn Federico Chiesa í leik kvöldsins.
Albert Guðmundsson í baráttunni gegn Federico Chiesa í leik kvöldsins. Jonathan Moscrop/Getty Images

Albert Guðmundsson skoraði mark Genoa er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Gestirnir í Juventus höfðu verið á mikilli siglingu í undanförnum leikjum og hefðu komið sér á topp deildarinnar með sigri í kvöld.

Þeir tóku forystuna á 28. mínútu þegar Federico Chiesa skoraði af vítapunktinum og staðan var því 0-1 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja.

Albert Guðmundsson jafnaði hins vegar metin fyrir Genoa strax á þriðju mínútu síðari hálfleiks eftir stoðsendingu frá Caleb Ekuban sem hafði komið inn á sem varamaður í hálfleik.

Reyndist það eina mark seinni hálfleiksins og niðurstaðan varð því 1-1 jafntefli. Albert og félagar í Genoa sitja nú í 14. sæti deildarinnar með 16 stig eftir 16 leiki, en Juventus situr í öðru sæti með 37 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira