Sport

Dag­skráin í dag: Ís­lendinga­slagur í Þýska­landi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Glódís Perla er í beinni í dag.
Glódís Perla er í beinni í dag. EPA-EFE/ANNA SZILAGYI

Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 í dag. Við bjóðum upp á stórleik í þýsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu, Lögmál leiksins, GameTíví, Serie A og NHL.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 20.00 er Lögmál leiksins á dagskrá. Þar verður farið yfir það helsta sem hefur gerst í NBA-deildinni í körfubolta.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 17.20 er leikur Empoli og Lecce í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu, á dagskrá.

Klukkan 19.35 er leikur Cagliari og Sassuolo á dagskrá í sömu deild.

VodafoneSport

Klukkan 18.25 er leikur Bayern München og Bayer Leverkusen á dagskrá. Þar mætast landsliðskonurnar Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir. Sú síðarnefnda er á láni hjá Leverkusen frá Bayern.

Klukkan 00.05 er leikur Islanders og Maple Leafs í NHL-deildinni í íshokkí á dagskrá.

Stöð 2 ESport

Klukkan 20.00 er GameTíví á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×