Sport

Dag­skráin í dag: Úr­slit NBA-bikar­keppninnar, fót­bolti, hand­bolti og ís­hokkí

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Los Angeles Lakers er komið í úrslit í Las Vegas.
Los Angeles Lakers er komið í úrslit í Las Vegas. AP Photo/Ian Maule

Það er svo sannarlega nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Við bjóðum upp á spennandi leiki í fótbolta, þýska handboltann, íshokkí og fyrsta úrslitaleik í sögu NBA-bikarkeppninnar.

Stöð 2 Sport 2

  • Klukkan 13.50 er leikur Hellas Verona og Lazio í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, á dagskrá.
  • Klukkan 16.50 er leikur Atalanta og AC Milan í sömu deild á dagskrá.
  • Klukkan 19.35 er svo komið að leik Inter og Udinese.
  • Klukkan 01.30 er komið að leik Los Angeles Lakers og Indiana Pacers í NBA-bikarkeppninni í körfubolta. Er þetta í fyrsta sinn sem keppnin er haldin.

Vodafone Sport

  • Klukkan 11.55 er leikur Manchester City og Aston Villa í ensku úrvalsdeild kvenna á dagskrá.
  • Klukkan 14.55 er komið að leik Queens Park Rangers og Hull City í ensku B-deildinni í fótbolta.
  • Klukkan 17.25 er stórleikur Borussia Dortmund og RB Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta á dagskrá.
  • Klukkan 19.30 mætast Erlangen og THW Kiel í þýska handboltanum.
  • Klukkan 00.05 er leikur Detroit Red Wings og Ottawa Senators í NHL-deildinni í íshokkí á dagskrá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×