Seldi öll verk sín á fyrstu fimm mínútunum
„Mikil eftirvænting var í loftinu, þá sérstaklega eftir verkum eftir listamanninn Loja Höskuldsson sem seldust upp á fyrstu fimm mínútunum. Einnig seldust öll verkin eftir Fritz Hendrik og Ásgerði Birnu Björnsdóttur, sem hlaut Hvatningarverðlaunin á Myndlistarverðlaunum Íslands 2023.
Sýningin er sölusýning með verkum eftir 32 samtímalistamenn, sem unnu verkin sérstaklega fyrir þessa sýningu. Helga Jóakimsdóttir og Ólöf Rut Stefánsdóttir sáu um sýningarstjórn en á sýningunni má sjá breiðan hóp myndlistarmanna, allt frá nýútskrifuðum listamönnum yfir í eldri kanónur á borð við Kristinn E. Hrafnsson, Gabríelu Friðriksdóttur og Finnboga Pétursson,“ segir í fréttatilkynningu.

Þetta er í annað sinn sem sýningin er sett upp með þessu móti en samhliða henni er gefin út bók með viðtölum við listamennina, innliti á vinnustofur þeirra og verkunum sem eru á sýningunni. Þar með nær sýningin að lifa áfram að henni lokinni.
Listamenn á Jólasýningunni 2023 eru:
Amanda Riffo, Andreas Brunner, Árni Jónsson, Á. Birna Björnsdóttir, Brák Jónsdóttir, Claire Paugam, Claudia Hausfeld, Curro Rodriguez, Elísabet Brynhildardóttir, Emma Heiðarsdóttir, Eva Ísleifsdóttir, Finnbogi Pétursson, Finnur Arnar, Fritz Hendrik, Gabríela Friðriks, Geirþrúður Hjörvar, Helga Páley, Helgi Hjaltalín Eyjólfsson, Ívar Valgarðsson, Karoliina Hellberg, Kristin Nordhoy, Kristinn E. Hrafnsson, Logi Leó, Loji Höskuldsson, Lukas Kindermann, Nína Óskarsdóttir, Shu Yi, Sigurður Guðjónsson, Sigurrós G. Björnsdóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Weronika Balcerak.
Ólöf Rut sýningarstjóri segist hafa selt listaverk í fyrsta skipti í gegnum Instagram í tengslum við sýninguna.
„Við erum með verk eftir Karoliinu Hellberg sem er mjög eftirsótt í Finnlandi. Pósthólfið og Instagram hjá okkur var því logandi af Finnum sem komust ekki á sýninguna og vildu næla sér í verk eftir hana.“

Jólabóka-glögg með rithöfundum
Á sama tíma opnaði gamaldags Bókaverzlun í Gryfjunni, sem er sýningarrými á fyrstu hæð, þar sem áhersla er lögð á að kynna nýjar bækur í bland við gamlar og rótgrónar bókmenntir, þeirra á meðal bókverk og bækur um myndlist.
„Þessi jólin eiga gestir og gangandi því eftir að geta sótt sér innblástur í bækur í Ásmundarsal og spjallað við marga fremstu rithöfunda landsins á Jólabóka-glöggi, sem er kvöldviðburður sem haldinn er alla þriðjudaga fram að jólum á milli klukkan 20-22. Þar er einnig að finna svokallaðan Photo-Moon-booth þar sem fólk getur tekið jólamynd.“

Nú þegar er einum viðburði lokið en þeir höfundar sem taka þátt í næstu Jólabóka-glöggum eru:
Þriðjudagur 12.des | klukkan 20-22
Yrsa Sigurðar, Rán Flygenring, Hjörleifur Hjartarson, Birgitta Haukdal, Auður Ólafs, Gunnar Helgason, Þórdís Gísladóttir, Linda Ólafsdóttir.
Þriðjudagur 19.des | klukkan 20-22
Margrét Tryggvadóttir, Tómar R. Einarsson, Sigríður Hagalín, Sirry, Ólafur Jóhann, Auður Jónsdóttir, Ragnar Jónasson, Kristinn Óli.
Almennur opnunartími sýningar verður alla daga frá 13-17 en opið verður til klukkan 20:00 dagana 22. og 23. desember.
Hér má sjá fleiri vel valdar myndir af opnuninni:


















