Sport

Dag­skráin í dag: Körfu­bolti, rafíþróttir og ís­hokkí

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Njarðvík tekur á móti Haukum í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld.
Njarðvík tekur á móti Haukum í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Vísir/Bára

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafona bjóða upp á fimm beinar útsendingar á þessum sjötta degi desembermánaðar.

Við hefjum leik í Njarðvík þar sem heimakonur taka á móti Haukum í Subway-deild kvenna í körfubolta klukkan 19:05 á Stöð 2 Sport. Að leik loknum verður Subway Körfuboltakvöld svo á sínum stað þar sem farið verður yfir allt það helsta úr leikjum umferðarinnar.

Körfuboltanum er þó ekki lokið því klukkan 19:25 eigast Virtus Bologna og Barcelona við í EuroLeague á Vodafone Sport áður en Lightning og Penguins etja kappi í NHL-deildinni í íshokkí á sömu rás klukkan 00:05 eftir miðnætti.

Á Stöð 2 eSport verður Föruneyti Pingsins svo á sínum stað með seinn vikulega þátt klukkan 20:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×