Handbolti

„Það sem skiptir mestu máli er að maður er búinn að njóta“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hildigunnur Einarsdottir spilaði sinn 100. A-landsleik í dag.
Hildigunnur Einarsdottir spilaði sinn 100. A-landsleik í dag. EPA-EFE/Beate Oma Dahle

Hildigunnur Einarsdóttir spilaði sinn hundraðasta A-landsleik í dag fyrir Íslands hönd þegar liðið beið lægri hlut gegn Frökkum, 22-31, á HM í handbolta.

Hildigunnur er að sjálfsögðu stolt af þessum áfanga og var nokkuð jákvæð eftir leik þrátt fyrir tap í dag gegn sjálfum Ólympíumeisturunum.

„Hún er bara mjög blönduð. Þetta er öðruvísi en síðasti leikur. Við vissum að við værum að mæta bara einu af fimm bestu liðum í heimi þannig við voru meira að horfa á hvernig við myndum spila frekar en einhverjar niðurstöður og geta bætt okkar leik, bætt okkar sóknarleik og varnarleik. Í raun er níu marka tap ekkert hræðilegt miðað við að við byrjum í 7-0. Aftur verður fyrsta korterið okkur að miklu falli sóknarlega þar sem þær refsa okkur fyrir einfaldar sóknar tæknifeila. Þannig í raun að mörgu leyti margt frábært og kannski ekkert hræðilegt að enda þetta með níu á móti þessu liði,“ sagði Hildigunnur um tilfinninguna eftir leikinn.

Franska liðið spilar gríðarlega hraðan bolta sem er hálfgerður ógjörningur við að eiga.

„Þær eru geggjaðar sko. Hornamennirnir eru oft liggur við komnar upp á miðju og það er ekki búið að slútta, þær eru ógeðslega góðar að stela, dúndra fram og svo eru þær með svona leikmenn sem þú hugsar bara að þær geta komið á þig í allar áttir. Við þurfum að vera rosalega þéttar á þær, þetta eru svona skopparakringlur og svo koma bara einhverjar dúndrur. Þetta eru bara einar af bestu íþróttakonum í heimi, bestu handboltakonum í heimi, þær geta gert allt og eru ógeðslega góðar. Það var mjög gaman að mæta þeim en betra þegar við náðum aðeins að stjórna sóknarleiknum okkar og klára sóknirnar okkar betur og þá minnkuðum við líka hraðaupphlaupin hjá þeim og það er það sem breytti svolítið leiknum hjá okkur.“

Elín Jóna Þorsteinsdóttir átti sannkallaðan stórleik en hún varði fjögur vítaskot í leiknum ásamt ótal dauðafærum og endaði með 14 varða bolta. Hildigunnur gat ekki annað en hrósað liðsfélaga sínum eftir slíka frammistöðu.

„Elín Jóna á daginn, ég skal gefa henni daginn,“ sagði Hildigunnur brosandi og hélt áfram: 

„Hún var sturluð, hélt okkur bara inn í leiknum, ég veit alveg að þetta var enginn spennandi leikur, en hún hélt okkur frá því að þetta yrði eitthvað hræðilegt. Hún var ógeðslega góð, hún var stórkostleg! Þriðja vítið, þá sagði ég við Gústa (Ágúst Jóhannsson): „Hún tekur þetta“ og hún tók þetta. Hún var ógeðslega góð, aldrei séð annað eins hjá henni.“

Hildigunnur spilaði sinn hundraðasta A-landsleik í dag og var að sjálfsögðu stolt af áfanganum.

„Bara gaman, geggjað, ógeðslega gaman að ná þessum árangri. Ég var ekkert viss í kringum áttatíu og eitthvað að ég færi svona langt og ég myndi spila svona lengi þannig þetta er bara ógeðslega gaman. Gaman að ná þessu og gaman að gera þetta hér og fjölskyldan er hérna og fullt af Íslendingum og ég er bara mjög stolt með þennan árangur.“

Hildigunnur einbeitt.EPA-EFE/Beate Oma Dahle

„Það er alltaf svona einn og einn einhver frábær leikur sem stendur upp úr og einhverjir óvæntir sigrar jafnvel og man meira segja hvort við unnum ekki Austurríki og komumst inn á EM fyrst, það var frábært. Fyrsti landsleikurinn ég mun aldrei gleyma honum á móti Hollandi í Hollandi, það er fullt af svona leikjum, þeir eru orðnir svo margir sko. Það sem skiptir mestu máli er að maður er búinn að njóta og það er það sem ég er að gera núna. Það er alltaf gaman að tikka inn tölur og allt það en vegferðin er búin að vera frábær og með frábærum stelpum og þjálfurum þannig það er það sem stendur og maður getur labbað stoltur frá sínum landsliðsferli þegar að því kemur og það er kannski svona það sem mun standa upp úr hjá mér á endanum; bara sátt með langan og góðan feril,“ sagði Hildigunnur enn fremur þegar hún var spurð hvaða stæði upp úr á sínum langa landsliðsferli.

Klippa: Viðtal: Hildigunnur Einarsdóttir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×