Sport

Dag­skráin í dag: Meistaradeildin í for­grunni

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
PSG og Newcastle mætast í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
PSG og Newcastle mætast í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Richard Sellers/Sportsphoto/Allstar via Getty Images

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á hvorki fleiri né færri en fimmtán beinar útsendingar á þessum fína þriðjudegi þar sem Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu verður fyrirferðamikil.

Stöð 2 Sport

Það verður þó íslenskur körfubolti sem fær sviðið á Stöð 2 Sport í dag og hefjum við leik á viðureign Fjölnis og Grindavíkur í Subway-deild kvenna klukkan 19:05 áður en Subway Körfuboltakvöld Extra tekur við keflinu klukkan 21:10.

Stöð 2 Sport 2

Feyenoord tekur á móti Atlético Madrid í UEFA Youth League klukkan 12:50 áður en Manchester City og Leipzig eigast við í sömu keppni klukkan 14:55.

Klukkan 19:30 er svo komið að Meistaradeildarmessunni þar sem sérfræðingar Stöðvar 2 Sports fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu á sama tíma í beinni útsendingu. Að leikjunum loknum verða Meistaradeildarmörkin svo á sínum stað þar sem farið verður yfir allt það helsta úr leikjum kvöldsins.

Stöð 2 Sport 3

Lazio tekur á móti Celtic í E-riðli Meistaradeildar Evrópu klukkan 17:35 og klukkan 19:50 mætast Manchester City og Leipzig í G-riðli.

Þá verður Lokasóknin á sínum stað klukkan 22:00 þar sem NFL-deildinni í amerískum fótbolta verður gerð góð skil.

Stöð 2 Sport 4

Barcelona og Porto eigast við í H-riðli Meistaradeildar Evrópu klukkan 19:50.

Stöð 2 Sport 5

Atlético Madrid sækir Feyenoord heim í E-riðli Meistaradeildar Evrópu klukkan 19:50.

Vodafone Sport

Shakhtar Donetsk og Royal Antwerp mætast í H-riðli Meistaradeildar Evrópu klukkan 17:35 áður en PSG tekur á móti Newcastle í F-riðli klukkan 19:50.

Þá eigast Maple Leafs og Panthers við í NHL-deildinni í íshokkí klukkan 00:05 eftir miðnætti.

Stöð 2 eSport

Ljósleiðaradeildin í Counter-Strike verður á sínum stað á Stöð 2 eSport klukkan 19:15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×