Stjarnan í fallsæti og botnliðið lagði Hauka Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. nóvember 2023 21:36 Haukar töpuðu. Vísir/Vilhelm HK lagði Stjörnuna með eins marks mun í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, lokatölur 28-27. Þá vann Selfoss tveggja marka sigur á Haukum, 30-28.
Það var jafnt á nærri öllum tölum framan af leik og staðan var jöfn 16-16 í hálfleik. Í síðari hálfleik var það sama upp á teningnum en í blálokin var það HK sem steig skrefið og landaði sigrinum. Sigurjón Guðmundsson varði 18 skot í marki HK og munaði um minna. Sigurður Jeffersson skoraði 7 mörk í sigurliðinu og var markahæstur. Hjá Stjörnunni skoraði Pétur Árni Hauksson 8 mörk og Adam Thorstensen varði 10 skot. Á Selfossi voru Haukar í heimsókn og þar var líka jafnt á öllum tölum framan af en svo náðu gestirnir góðum kafla og voru um tíma fimm mörkum yfir, staðan 12-17 í hálfleik. Selfyssingar mættu grimmir inn í síðari hálfleikinn, söxuðu forystuna fljótt niður og staðan orðin jöfn 23-23 um miðbik síðari hálfleiks. Það voru síðan heimamenn sem reyndust sterkari á lokasprettinum. Hannes Höskuldsson var markahæstur í liði heimamanna með 8 mörk á meðan Einar Sverrisson skoraði 6. Í markinu vörðu Alexander Hrafnkelsson og Vilius Rasimas samtals 16 skot. Í liði Hauka skoraði Þráinn Orri Jónsson 7 mörk og Össur Haraldsson gerði 6 mörk líkt og Guðmundur Bragi Ástþórsson. Haukar eru í 6. sæti með 10 stig, HK í 7. sæti með 7 stig, Stjarnan í 11. sæti með 5 stig og Selfoss áfram á botninum með 4 stig.
Handbolti Olís-deild karla HK Stjarnan UMF Selfoss Haukar Mest lesið Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Íslenski boltinn Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Fótbolti Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Enski boltinn „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Enski boltinn Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Fleiri fréttir Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Sjá meira