Sport

Dag­skráin í dag: Toppslagur í Subway-deild kvenna

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Valskonur taka á móti Njarðvík í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld.
Valskonur taka á móti Njarðvík í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á tíu beinar útsendingar á þessum fína miðvikudegi þar sem ber hæst að nefna viðureign Vals og Njarðvíkur í Subway-deild kvenna í körfubolta.

Njarðvíkingar heimsækja Valskonur í toppslag Suway-deildar kvenna í körfubolta klukkan 19:05 á Stöð 2 Sport í kvöld. Liðin sitja í öðru og fjórða sæti deildarinnar og þurfa bæði á sigri að halda til að halda í við topplið Keflavíkur. Að leik loknum verður Subway Körfuboltakvöld á dagskrá þar sem farið verður yfir liðina umferð í Subway-deild kvenna.

Þá býður Vodafone Sport upp á beinar útsendingar úr strandblaki og NHL-deildinni í íshokkí og á Stöð 2 eSport verður sýnt frá BLAST Premier mótaröðinni í Counter-Strike frá morgni til kvölds.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×