Íbúar níutíu heimila fá að fara inn frá klukkan níu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. nóvember 2023 08:00 Þeir einir fá að fara inn í bæinn sem þegar hafa fengið símtal. Vísir/Vilhelm Líkt og í gær er búið að hafa samband við þá íbúa sem fá að fara heim til Grindavíkur í dag. Þeir einir fá að fara sem aðgerðastjórnin í Reykjanesbæ hefur haft samband við.
Um er að ræða 90 fasteignir og hefst aðgerðin klukkan 9. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Aðkomuleið fyrir íbúa til verðmætabjörgunar verður einungis um Grindavíkurveg frá Reykjanesbraut. Eftir klukkan 14 verður forsvarsmönnum fyrirtækja hleypt inn á svæðið en aðeins þeim sem aðgerðastjórnin hefur haft samband við. „Íbúar eru upplýstir um framkvæmdina og hvenær þeir eiga að mæta við gatnamót Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar. Íbúar verða fluttir með björgunarsveitarbifreiðum frá söfnunarstað utan Grindavíkur og frá heimilum í Grindavík til baka. Áætlunin getur breyst án fyrirvara, en þetta verður skipulögð og stýrð aðgerð undir stjórn lögreglu. Í dag eru viðbragðsaðilar að vinna inn á mesta hættusvæði Grindavíkur. Til að tryggja öryggi viðbragsaðila og íbúa verður fjölmiðlafólki ekki hleypt inn fyrir lokunarpósta í dag. Undanþágur frá drónabanni eru veittar en afgreiðsla beiðna er í höndum ríkislögreglustjóra. Fjölmiðlar hafa þessar upplýsingar. Íbúum Grindavíkurbæjar er bent á góða upplýsingagjöf á heimasíðu Grindavíkurbæjar www.grindavik.is og heimasíðu almannavarna www.almannavarnir.is Til athugunar fyrir íbúa: Ekki fara ef þú þarft ekki nauðsynlega að fara Aðeins verður leyfi fyrir einn aðila að fara inn á svæðið, fyrir hvert heimili Skráið niður lista yfir það sem þið hyggist sækja áður en lagt er af stað Munið eftir húslykli Búr fyrir gæludýr ef þörf er á Poka eða annað undir muni Íbúar hafa stuttan tíma inni á heimilinu. Þau sem fara mega ekki vera með bráðaofnæmi fyrir dýrum því það verða gæludýr með í för í bakaleiðinni. Þetta er eingöngu til þess sækja mjög mikilvæga hluti s.s. gæludýr, lífsnauðsynleg lyf, hugsanlega vegabréf eða aðra ómissandi hluti fyrir heimilisfólk Mjög mikilvægt er að allir sem koma að þessari aðgerð hlýði vandlega öllum fyrirmælum lögreglu sem stýrir þessari aðgerð og virði tímamörk.“
Grindavík Eldgos á Reykjanesskaga Eldgos og jarðhræringar Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Fleiri fréttir Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Sjá meira