Innlent

Kvikugangurinn gæti verið allt að tólf kíló­metrar

Lovísa Arnardóttir skrifar
Skjálftavirknin hefur aukist suðvestan við bæinn.
Skjálftavirknin hefur aukist suðvestan við bæinn.

Land virðist hafa gliðnað um allt að 120 sentímetra. Jarðskjálftavirknin hefur færst nær hafi og kvikugangurinn lengst. 

Enn mælist mikil skjálftavirkni við Grindavík þótt hún hafi eitthvað róast. Virknin er mest suðvestur af bænum sem jarðvísindamenn í hópnum Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands segja til marks um að kvikugangurinn hafi lengst enn frekar, jafnvel út á haf.

„Ljóst er að um miklu öflugri og stærri atburð er að ræða en sést hefur áður á Reykjanesskaga á síðustu árum. Sé miðað við norðurenda Sundnhjúkagíga og að suðurenda hrinunnar gæti gangurinn náð núna um 12 km,“ segir í færslu hópsins á Facebook og að gríðarmikil aflögun hafi fylgt hrinunni og innskotinu.

Mælar fjarlægst hvorn annan um 120 sentímetra

Þá segir að GPS mælar sýni núna við Festarfjall og Svartsengi að þeir hafa ýst fjær hvor öðrum um 120 sentímetra. Megintilfærslan varð á örfáum klukkutímum í gær á meðan kvikugangurinn myndaðist. Til samanburðar gliðnaði Fagradalsfjall um tíu sentímetra í sumar áður en það gaus þar.

„Er þetta gliðnun og teljast hreyfingarnar mjög miklar. Þessar stóru tölur sjást þegar vegalengd er mæld milli stöðva og línan liggur þvert yfir kvikuganginn. Í öllum hamaganginum hefur kvikugangurinn komið upp nærri yfirborði og rutt landinu til hliðar, svo fjarlægðin milli jókst lengdist,“ segir að lokum í færslunni sem er hægt að sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Vaktin: Viðbragðsaðilar snúa aftur úr hvíld

Rýmingu í Grindavík er lokið eftir að neyðarstigi var lýst yfir í gærkvöldi. Ástæða rýmingar er að ekki er hægt að útiloka að kvikugangurinn sé undir eða geti náð til Grindavíkur.

Um 800 skjálftar frá miðnætti

Enn er stöðug skjálftavirkni þótt hún hafi róast eitthvað. Kvikugangurinn virðist enn undir Grindavík. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×