Innlent

Guð­laugur Þór segir öllum of­bjóða hryllingurinn á Gaza

Heimir Már Pétursson skrifar
Sveinn Rúnar Hauksson læknir með fána Palestínu. Ísland er eitt fárra ríkja sem hafa viðurkennt sjálfstæði Palestínu.
Sveinn Rúnar Hauksson læknir með fána Palestínu. Ísland er eitt fárra ríkja sem hafa viðurkennt sjálfstæði Palestínu. Vísir/Vilhelm

Hátt á þriðja hundrað mótmælenda kröfðust þess við Ráðherrabústaðinn í dag að ríkisstjórnin krefðist tafarlauss vopnahlés á Gaza. Fyrrverandi utanríkisráðherra segir öllum ofbjóða ástandið og óska þess að átökunum ljúki.

Gríðarlegt mannfall og eyðilegging blasir í Gazaborg og nágrenni. Frá því Ísraelsher hóf árásir sínar eftir hryðjuverk sveitar Hamas fyrir mánuði, hafa heimili og sjúkrahús ásamt öðrum innviðum orðið fyrir stöðugum loftárásum.

Rúmlega fjögur þúsund börn hafa fallið í árásum Ísraelshers á Gaza undanfarnar vikur.AP/Adel Hana

Ísraelsher hefur haldið loftárásum áfram á Gaza í dag þar sem yfir tíu þúsund manns hafa fallið, þar af yfir fjögur þúsund börn frá því átökin hófust. Fjöldi barna og fullorðinna hefur að auki særst og alger ringulreið ræður ríkjum þar sem foreldrar og aðrir ættingjar leita að ástvinum sínum í húsarústum og á þeim sjúkrahúsum sem enn eru starfhæf.

Á myndum í meðfylgjandi sjónvarpsfrétt sjást tugir manna fylgja tveimur börnum til grafar í Gazaborg í dag.

Mótmælendur létu í sér heyra þegar Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra mætti til ríkisstjórnarfundar í morgun.Vísir/Vilhelm

Hátt á þriðja hundrað mótmælenda kom saman fyrir utan Ráðherrabústaðinn fyrir ríkisstjórnarfund í morgun þar sem þess var krafist að íslensk stjórnvöld kölluðu þegar eftir vopnahléi í átökunum.

 Margrét Kristín Blöndal, Magga Stína,  tónlistarkona var á meðal mótmælenda. Hún segir fólki eðlilega verða brjálað þegar verið væri að fremja þjóðarmorð á innikróaðri þjóð.

Almenningur styður ekki fjöldamorð á börnum

„Almenningur vill ekki fjöldamorð, vill ekki fjöldamorð á börnum. Hann vill ekki þessa viðbjóðslegu valdníðslu og þann níðingsskap sem verið er að sýna,“ sagði Magga Stína meðal annars í viðtali við fréttastofu.

Magga Stína segir að Íslenidngar hljóti að mótmæla því þegar verið væri að fremja þjóðarmorð á innikróaðri þjóð á Gaza.Vísir/Vilhelm

Ísraelsmenn eru komnir með landher inn á Gazaströndina og segjast hafa náð að umkringja borgina og skipta henni í tvennt. Markmið þeirra er að uppræta Hamas í eitt skipti fyrir öll og frelsa um 240 gísla samtakanna. Þrátt fyrir hvatningu margra ríkja til að gert verði vopnahlé hafa stjórnvöld í Ísrael ekki tekið það til greina.

Guðlaugur Þór Þórðarson fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi umhverfis- orku- og loftslagsráðherra segir íslensk stjórnvöld ekki þurfa að skammast sín fyrir að hafa verið í þeim hópi ríkja sem þau voru við atkvæðagreiðslu hjá Sameinuðu þjóðunum. Það liggi skýrt fyrir að íslensk stjórnvöld vilji sjá frið á þessu svæði.

Þorvaldur Þorvaldsson hrópaði áskoranir um vopnahlé og fleira í gjallarhorn á mótmælunum í morgun.Vísir/Vilhelm

„Að sálfsögðu ofbýður manni þetta allt saman. Þetta hófst með hræðulegu hryðjuverki þar sem tvö þúsund ungmenni, að stærstum hluta, voru á tónleikahátíð og voru drepin með köldu blóði. Síðan erum við að sjá hlutina verða verri og verri. Þetta hlýtur öllum að ofbjóða,“ sagði Guðlaugur Þór á leið á ríkisstjórnarfund í morgun.

Sveinn Rúnar Hauksson læknir og fyrrverandi formaður samtakanna Ísland-Palestína þekkir vel til aðstæðna á Gaza og segir þetta vera hryllilegustu árásir sem gerðar hafi verið á Palestínumenn.

„Það deyr eitt barn á tíu mínútna fresti og tvö önnur særð. Allan sólarhringinn. Þetta er hryllingur og við verðum, eins og þú heyrir hér, að krefjast öll sem eitt vopnahlés strax,“ sagði Sveinn Rúnar.

Hátt í þrjú hundruð manns mættu á mótmælin við Ráðherrabústaðinn í morgun.Vísir/Vilhelm

Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra segir stöðuna mjög viðkvæma.

„Það eru heitar tilfinningar í þessu. Við höfum alltaf barist fyrir mannréttindum og að virða alþjóðalög og við munum halda áfram að gera það.“

Finnst þér að ríkisstjórnin hefði átt að bregðast öðruvísi við en hún gerði hjá Sameinuðu þjóðunum?

„Ég styð að sjálfsögðu utanríkisráðherra í þessu. Hann greiddi atkvæði eins og aðrar Norðurlandaþjóðir fyrir utan Norðmenn,“ sagði Lilja á leið á ríkisstjórnarfund.

Saga Garðarsdóttir leikkona var á meðal mótmælenda og sagðist vera gjörsamlega nóg boðið.

„Það er ekki hægt að horfa upp á þetta og gera ekki neitt. Ég trúi því ekki að við ætlum ekki að fordæma þetta.“

Hvernig finnst þér að íslensk stjórnvöld hafa tekið á þessu máli?

„Heigulslega. Algerlega. Mér finnst ótrúlegt að þau séu ekki búin að fordæma þetta og ýta undir vopnahlé.“

Þannig að það er sorg í þínu hjarta?

„Já, það er það,“ sagði Saga Garðarsdóttir á mótmælunum við Ráðherrabústaðinn í morgun.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá mótmælunum við Ráðherrabústaðinn og frá Gaza ásamt viðtölum við viðmælendur fréttarinnar í heild sinni:


Tengdar fréttir

Segir engan ágreining ríkja um afstöðu Íslands

Utanríkisráðherra segir engan ágreining ríkja um afstöðu Íslands varðandi átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. Farsælast væri að Alþingi sameinaðist um þau grundvallargildi sem allir væru sammála um.

Stjórnarþingmenn flytja tillögu um ákall eftir vopnahléi

Hópur þingmanna hefur smíðað þingsályktunartillögu um að fordæma aðgerðir Ísraelshers í Palestínu og kalla eftir tafarlausu vopnahléi af mannúðarástæðum. Tveir þingmenn Vinstri grænna eru flutningsmenn tillögunnar.

Íslensk stjórnvöld auka fjárframlög og kalla eftir mannúðarhléi

Íslensk stjórnvöld hyggjast tvöfalda framlög sín til mannúðaraðstoðar á Gasa. Frá þessu var greint við neyðarumræðu um átökin á svæðinu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi, þar sem fulltrúi Íslands kallaði eftir tafarlausu hléi.

Utan­ríkis­ráðu­neytið birtir tíma­línuna

Utanríkisráðuneytið hefur birt nákvæma tímalínu yfir samskipti ráðuneyta og aðdraganda atkvæðagreiðslu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, þar sem greidd voru atkvæði um tillögu Jórdaníu um vopnahlé á Gasa. Forsætisráðuneytið fékk upplýsingar einum og hálfum klukkutíma eftir að afstaða utanríkisráðherra lá fyrir.

Katrín fékk tölvu­póst ellefu mínútum fyrir at­kvæða­greiðsluna

Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra barst tölvupóstur ellefu mínútum áður en atkvæðagreiðsla hófst hjá Sameinuðu þjóðunum um ástandið á Gaza-svæðinu. Hún segist ekki hafa séð póstinn fyrr en eftir að atkvæðagreiðsla hófst og ekki hafi verið óskað sérstaklega eftir afstöðu hennar til málsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×