Handbolti

„Það mun reyna á hópinn á margan hátt“

Aron Guðmundsson skrifar
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta.
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. Vísir/Hulda Margrét

Lands­liðs­hópur ís­lenska kvenna­lands­liðsins fyrir komandi heims­meistara­mót í hand­bolta hefur nú verið opin­beraður. Arnar Péturs­son, lands­liðs­þjálfari, hefur valið þá á­tján leik­menn sem halda til Noregs á mót sem hann segir gríðar­lega mikil­vægt fyrir þá veg­ferð sem liðið er á.

„Það sem við viljum fá úr þessu móti er fyrst og fremst að það nýtist okkur til framtíðar,“ sagði Arnar á blaðamannafundi í dag. „Við erum, eins og oft hefur komið fram, á ákveðinni vegferð. Fyrir þá vegferð er þetta mót ofboðslega mikilvægt.“

Þetta er í fyrsta skipti í tólf ár sem Ís­land er á meðal þátt­töku­þjóða á HM kvenna í hand­bolta. Ís­lenska lands­liðið mun spila í D-riðli mótsins og er þar með í Frakk­landi, Angóla og Slóveníu. 

Riðillinn verður spilaður í Stavangri í Noregi og fer fyrsti leikur Íslands, gegn Slóveníu, fram þann 30. nóvember næstkomandi.

Ljóst er að allt í allt mun íslenska landsliðið fá um níu leiki hið minnsta á HM en á hvaða stigi mótsins það verður ræðst af úrslitum liðsins í riðlakeppninni. 

„Við erum að fá þarna níu alvöru leiki. Erum að fá góðan tíma saman. Eftir þessa leiki, mótið í heild sinni, munum við fá fullt af svörum sem ég vonast til og er alveg sannfærður um að munu hjálpa okkur alveg gríðarlega í næstu verkefnum.“

Markmiðin séu áfram þau sömu og þau hafa verið hjá liðinu. 

„Við förum inn í alla þessa leiki til þess að horfa aðeins á okkur, horfa á það sem við erum að gera. Horfa í frammistöðu. Við viljum að leikmenn leggi allt sitt í verkefnið og fáum svör við þeim leik sem við erum að leggja upp með.“

Reynslan sem verður til við það að spila á svona stórmóti muni nýtast vel í framhaldinu.

Það mun reyna á hópinn á margan hátt. Það mun vera krefjandi að eiga við þessi lið. Það mun vera, á einhverjum tímapunkti, erfitt. Fyrir okkur er það ágætis skóli sem við höfum gott af því að fá. “




Fleiri fréttir

Sjá meira


×