Innlent

Leita réttar síns vegna að­farar sýslu­manns í gær

Lovísa Arnardóttir skrifar
Í myndböndum sem tekin voru við heimili Eddu og drengjanna í kvöld má sjá að nokkur mannmergð hópaðist að lögreglumönnum í aðgerðunum. Fólk hrópaði að lögreglu og mótmælti aðgerðinni.
Í myndböndum sem tekin voru við heimili Eddu og drengjanna í kvöld má sjá að nokkur mannmergð hópaðist að lögreglumönnum í aðgerðunum. Fólk hrópaði að lögreglu og mótmælti aðgerðinni. Vísir

Edda Björk Arnardóttir og sambýlismaður hennar ætla að leita réttar síns vegna aðgerða sýslumanns og lögreglu við heimili þeirra í gær. Þar fór fram aðfaraaðgerð á vegum sýslumanns en flytja átti þrjá drengi hennar í forsjá föður þeirra í Noregi. Aðgerðinni var frestað eftir um þrjár klukkustundir. 

Edda Björk Arnar­dóttir, móðir þriggja drengja sem átti að flytja til Noregs í gær, gerir miklar at­huga­semdir við að­farar­að­gerð sýslu­manns á heimili hennar í gær og viðveru einkenndisklæddra lögreglumanna á meðan aðgerðinni stóð. 

Dómsmálaráðherra sagði í dag það alvarlegt að einkennisklæddir lögreglumenn hafi verið á staðnum og að viðbúnaðurinn virðist hafa gengið gegn ákvæðum barnalaga. Málið var rætt á þingi í óundirbúnum fyrirspurnum í dag, 

Í yfir­lýsingu frá lögmanni Eddu Bjarkar kemur fram að hún, og sam­býlis­maður hennar, ætli bæði að leita réttar síns vegna málsins. Bæði voru þau hand­tekin á vett­vangi í gær. Í yfir­lýsingu er því vísað á bug að engir ein­kennis­klæddir lög­reglu­menn hafi verið á vett­vangi fyrr en eftir tvær klukku­stundir, eins og kom fram í til­kynningu lög­reglu í dag.

Þar segir enn fremur að sam­býlis­maður hennar hafi verið hand­tekinn um tíu mínútum eftir að að­gerðin hófst og að hann hafi verið leiddur í burtu af ein­kennis­klæddum lög­reglu­manni.

„Mikill við­búnaður var hjá lög­reglu sem drengirnir voru full­kom­lega með­vitaðir um og urðu vitni að,“ segir í yfir­lýsingunni og að ein­kennis­klæddir lög­reglu­menn hafi lokað götunni og verið með blikkandi ljós á mótor­hjólum sínum.

Fram kom í til­kynningu frá Lög­reglunni á höfuð­borgar­svæðinu í dag að lög­reglan hafi verið á vett­vangi til að gæta öryggis. Bæði hafi verið á vett­vangi ein­kennis­klæddir og ó­ein­kennis­klæddir lög­reglu­menn en að ein­kennis­klæddir lög­reglu­menn hafi verið kallaðir til þegar að­gerðin hafði staðið í um tvær klukku­stundir og fólki hafi fjölgað á vett­vangi.

Föður dæmd forsjá

Eins og greint hefur verið frá í fjöl­miðlum í dag og í gær átti sér stað fjöl­menn að­gerð í gær­kvöldi við heimili Eddu Bjarkar. Málið snýst um for­sjá þriggja drengja hennar en dóm­stólar á Ís­landi og í Noregi hafa úr­skurðað faðir drengjanna for­sjá þeirra. Sýslu­maður fer með for­sjár­mál á Ís­landi og var að fram­fylgja úr­skurði með að­farar­að­gerðinni. Á vett­vangi voru einnig full­trúar lög­reglu og barna­verndar.

Í yfir­lýsingu lögmanns Eddu Bjarkar eru gerðar at­huga­semdir við það að faðir drengjanna hafi fengið að fara inn á heimili hennar til að ræða við drengina, en hún sjálf, sam­býlis­maður hennar og systur drengjanna. Þá gerir hún eins at­huga­semdir við það að faðir drengjanna hafi fengið að fara einn í bíl­túr með drengjunum.

Þá er einnig gerð at­huga­semd við það að lög­manni hennar hafi verið meinaður að­gangur að húsinu og að drengjunum hafi ekki verið skipaður sér­stakur tals­maður.

„Starfs­menn barna­verndar eru ó­lög­lærðir og drengirnir höfðu því engan lög­lærðan aðila til að gæta hags­muna þeirra við þessa fram­kvæmd,“ segir í yfir­lýsingunni.

Vantar tímamörk

Þá eru að lokum gerðar at­huga­semdir við það að engin tíma­mörk séu í að­farar­lögum um það hversu lengi aðili hafi slíka að­gerð yfir höfði sér og gerð krafa um að há­marks­tími sé settur í verk­lags­reglum og lögum um að ekki sé hægt að krefjast slíkrar að­gerðar án nokkurra tíma­marka.

Yfirlýsing Eddu í heild sinni: 

Fréttatilkynning vegna aðfarar sýslumanns 25.10.2023 gagnvart 3 drengjum

1.Lögregla og sýslumenn samhæfðu aðgerðir í 2 óskyldum málum. Lögregla handtók móðurina vegna farbannskröfu á sama tíma og sýslumaður ákvað að hefja aðfarargerð til að flytja þrjá drengi hennar á brott til Noregs. Lögregla veitti þar með atbeina sinn til að fjarlægja móður af vettvangi þannig að drengirnir væru einir í húsinu. Lögregla, sýslumaður, faðir og lögmaður föður komu á heimili móður allir á sama tíma í því skyni að fjarlægja hana þannig að hún væri ekki viðstödd þá viðurhlutamiklu aðgerð sem aðfarargerð gagnvart börnum er. Móðir hefur aldrei verið boðuð til aðfarargerðar, þrátt fyrir að hafa í tvígang óskað eftir því við sýslumann að boðað yrði til aðfarargerðar.

Móðir telur þetta vera misbeiting á opinberu valdi….

2.Lögregla handtók sambýlismann móður, setti hann í handjárn og frelsissvipti hann í 3 klst. fyrir það eitt að hann gerði kröfu um að fá að koma inn á heimili sitt til þess að drengirnir væru ekki þar einir. Hann sat með lögreglu í lögreglubíl í næstu götu við heimili sitt, var aldrei færður á lögreglustöð og ekki veitt heimild til að gæta réttar síns eða tala í síma. Einn drengjanna horfði upp á það er stjúpfaðir hans var handjárnaður og fluttur á brott af lögreglu í einkennisbúningi.

3.Systrum drengjanna var meinuð innganga á heimili sitt. Þær stóðu fyrir utan húsið í rúmar 2 ½ klst.

4.Faðir drengjanna fékk að fara inn á heimili móður ásamt sýslumanni og tveimur barnaverndarstarfsmönnum. Lögregla stýrði vettvangi og veitti föður heimild til að fara inn í húsið en ekki fjölskyldunni sem býr í húsinu. Hvorki fulltrúi sýslumanns né lögregla hafa skýrt hvaðan þeim kemur heimild til að víkja öðru heimilisfólki af heimili sínu né til að hleypa blóðföður drengjanna þangað inn.

5.Fólk sem kom að til að fylgjast með og mótmæla meintum brotum á barnalögum var ýtt í burtu af lögreglu, m.a. ýtti lögregla við tveimur lögmönnum og kærasta annarrar systur drengjanna. Framangreindum tveimur lögmönnum var skipað að fara alllangt frá lóðamörkum. Þeir höfðu þó fullt leyfi húseigenda til að vera innan lóðarinnar. Lögregla bar við að hún þyrfti „vinnufrið“. Lögreglu er heimilt að hafa afskipti af borgurunum til að halda uppi almannafriði og allsherjarreglu eða koma í veg fyrir yfirvofandi röskun til að gæta öryggis einstaklinga eða almennings eða til að afstýra afbrotum eða stöðva þau. Hvergi í lögreglulögum kemur fram að lögregla megi hefta för fólks sem er að mótmæla til að fá vinnufrið.

6.Faðir drengjanna fékk að fara einn í bíltúr með einn drengjanna í því skyni að fá drenginn til að vísa sér á hvar þriðji bróðirinn væri niðurkominn. Sendi faðirinn drenginn út úr bílnum til að hringja bjöllu heima hjá vini þriðja sonarins. Starfsmenn barnaverndar voru ekki í bifreiðinni og settu sig ekki gegn þessu.

7.Sýslumaður mótmælti því að móðir ætti rétt á að hafa lögmann viðstaddan framkvæmd aðfarargerðarinnar og vísaði til þess að móðirin væri ekki með forsjá þeirra. Móðir er gerðarþoli og á skýlausan rétt til slíks skv. 24. gr. aðfararlaga nr. 90/1989. Lögmaður móður fékk því ekki að koma inn í húsið og fékk ekki að vera viðstaddur þegar faðir, sýslumaður og barnaverndarstarfsmenn ræddu við drengina. Lögmaður móður, þurfti að standa fyrir utan húsið og krafðist þess að drengjunum væri kynnt réttarstaða sín og að ekki yrði farið gegn þeirra vilja.

8.Sýslumaður hafnaði því að drengjunum yrði skipaður talsmaður með þeim rökum að hann teldi nægjanlegt að Barnavernd gætti hagsmuna drengjanna. Við túlkun alþjóðasamninga t.d. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sbr. lög nr. 19/2013 er lögð vaxandi áhersla á að styrkja stöðu barna þar sem lykilatriðið er að tryggja rétt barns til þátttöku í málsmeðferð í málum er þau varða. Starfsmenn barnaverndar eru ólöglærðir og drengirnir höfðu því engan löglærðan aðila til að gæta hagsmuna þeirra við þessa framkvæmd.

9.Barnavernd ræddi við drengina og tjáði drengjunum að móðir þeirra væri farin til Noregs, stjúpfaðir þeirra væri farinn og því yrðu þeir að fara með föður sínum til Noregs. Barnavernd sagði drengjunum einnig að þeir gætu komið oft í heimsókn til Íslands þegar þeir væru fluttir til Noregs. Einn drengjanna fullyrðir að bæði barnaverndarstarfsmaður og fulltrúi sýslumanns hafi fullyrt þetta við sig. Móðir telur mjög alvarlegt að opinberir starfsmenn halli með svo alvarlegum hætti réttu máli í þeim tilgangi að hafa áhrif á afstöðu drengjanna. Móðir var ekki á neinum tímapunkti á leið til Noregs.

10.Barnavernd lagði sig ekki á nokkurn hátt fram um að gæta með sjálfstæðum hætti hagsmuna drengjanna heldur var Barnavernd mætt á staðinn til að veita sýslumanni liðstyrk í því að framkvæma brottflutning drengjanna til föður. Greinilegt er að Barnavernd, sýslumaður og lögregla höfðu sameiginlega undirbúið þessa framkvæmd. Starfmenn barnaverndar voru ekki viðstaddir a.m.k. ekki allan tímann á meðan faðirinn ræddi við drengina og voru fyrir utan húsið á meðan samtal föður við drengina inni í húsinu fór fram. Barnavernd gerði ekki athugasemdir við að faðirinn færi með einn drengjanna í bílferð í bíl á vegum föður. Kallað var að starfsmönnum barnaverndar að kynna drengjunum réttarstöðu sína og upplýsa þá um hana en Barnavernd játaði aldrei að hafa kannað vilja drengjanna sérstaklega til þeirrar kröfu að verða afhentir föður. Starfsmaður barnaverndar fór inn í herbergi eins drengjanna og tíndi dót í ferðatösku og bar hana út í bifreið sem var á vegum föður.

11.Fulltrúi sýslumanns fullyrti við lögmann móður að drengirnir vildu fara. Tveimur mínútum síðar er systur drengjanna spurðu drengina hvort það væri rétt að þeir vildu fara, þá neituðu þeir því algjörlega. Lögmanni móður voru veittar rangar upplýsingar um afstöðu drengjanna.

12.Lögreglumenn voru í einkennisbúningum á lögreglubílum með blá blikkandi ljós, á mótorhjólum og lokuðu umferð inn í götuna. Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu sem drengirnir voru fullkomlega meðvitaðir um og urðu vitni að.

13.Aðfarargerð var frestað eftir 3 klukkustundir sem þýðir að henni er ekki lokið. Engin tímamörk eru í aðfararlögum á því hversu lengi aðili hafi yfirvofandi aðfarargerð yfir höfði sér. Drengirnir hafa dvalið á Íslandi í 19 mánuði. Til samanburðar er nýtt ákvæði í 2. mgr. 74. gr. laga 80/2016 um útlendinga um að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki hefur fengið niðurstöðu á stjórnsýslustigi innan 16 mánaða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða….. Nauðsynlegt er að hámarkstími sé ákveðinn í verklagsreglum og/eða lögum um að ekki sé hægt að krefjast aðfarar án nokkurra tímatakmarkana.


Tengdar fréttir

Flutningi þriggja ís­lenskra drengja til Noregs frestað

Flytja átti þrjá íslenska drengi til föður síns í Noregi í kvöld. Hann fer með forsjá þeirra samkvæmt úrskurði íslenskra og norskra dómstóla. Fjölmennt lögreglulið var á vettvangi í kvöld á vegum sýslumanns og nokkuð umstang. Móðir drengjanna var handtekin en síðar sleppt og aðgerðinni frestað. 

Aðgerðir í Foldahverfi virðist ekki í samræmi við lög

Lögregluaðgerðirnar í Foldahverfi í gær, þar sem flytja átti þrjá drengi úr umsjá móður þeirra, verða skoðaðar segir dómsmálaráðherra. Hún segir alvarlegt að einkennisklæddir lögreglumenn hafi verið á staðnum og að viðbúnaðurinn virðist hafa gengið gegn ákvæðum barnalaga.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×