Körfubolti

Grindvíkingar fá króatískan miðherja

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Matija Jokic skrifar undir samninginn við Grindavík.
Matija Jokic skrifar undir samninginn við Grindavík. grindavík

Karlalið Grindavíkur í körfubolta hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin sem framundan eru.

Króatíski miðherjinn Matija Jokic hefur samið við Grindavík út þetta tímabil. Grindvíkingar greindu frá þessu í dag.

Jokic er kominn með leikheimild og gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Grindavík þegar liðið tekur á móti Breiðabliki í 4. umferð Subway-deildarinnar í kvöld.

Grindvíkingar hafa tapað fyrstu þremur leikjum sínum í Subway-deildinni, þar af tveimur á heimavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×