Innlent

Sagðist hataður af fiskeldisfyrirtækjum og skammaður af mótmælendum

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Guðlaugur, sem hefur laxeldið að litlu leyti á sinni ráðherrakönnu, fékk ekkert sérlega hlýjar kveðjur. Hann kveðst hafa haft áhyggjur af eldinu lengi.
Guðlaugur, sem hefur laxeldið að litlu leyti á sinni ráðherrakönnu, fékk ekkert sérlega hlýjar kveðjur. Hann kveðst hafa haft áhyggjur af eldinu lengi. Valgarð Gíslason

Fjölmenn mótmæli gegn sjókvíaeldi á Íslandi fóru fram á Austurvelli í dag. Guðlaugur Þór Þórðarsson umhverfisráðherra þakkaði mótmælendum fyrir mætingu en fékk kaldar kveðjur til baka. Bubbi Morthens sagði Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra eina ráðherrann sem væri að standa sig.

Það var fjölmennt á Austurvelli í dag. Umræðan um skaðsemi sjókvíaeldis hefur enda verið hávær og áberandi síðustu vikur, eða frá því að göt á kví ArcticFish uppgötvuðust í Patreksfirði. Síðan þá hafa laxveiðimenn tilkynnt fjöldann allan af eldislöxum til Hafró, sem komu úr ám víðsvegar á Norður og Vesturlandi. Valgarð Gíslason

Guðlaugur Þór flutti stutta ræðu. Mótmælin sagði hann ekki koma til af góðu. 

„Þetta kemur til vegna þess að því sem var lofað, gekk ekki eftir. Það er hvorki meira né minna undir en náttúra Íslands. Það hefur oft verið sagt að við séum ekki tilbúin að vernda það sem er mikilvægt en þessi stórkostlega mæting hér sýnir að svo er ekki,“ sagði Guðlaugur og þakkaði mótmælendum fyrir mætinguna. 

Ráðherra skammaður

Í stað þess að fagna þeim orðum Guðlaugs heyrðist hrópað úr mótmælendahópnum og ráðherrann beðinn að gera eitthvað í málnum. Á endanum var baulað á Guðlaug sem klóraði þó í bakkann og fékk nokkra til að klappa þegar hann þakkaði mótmælendum í annað sinn. Ávarp hans má sjá í heild sinni hér að neðan, sem og viðtal eftir ávarpið. 

Þegar ávarpi Guðlaugs lauk og hann steig niður af sviðinu gantaðist Guðlaugur með það við skipuleggjanda að hann væri hataður af fiskeldisfyrirtækjunum en líka skammaður eins og hundur þegar hann mæti til á mótmæli til að sýna samstöðu.

Hann tók það fram í viðtali eftir ræðuna að fiskeldið væri ekki á hans borði heldur sjávarútvegsráðherra. Heilbrigðiseftirlit sé hins vegar í hans verkahring og sagði Guðlaugur að niðurstöður skýrslu liggi fyrir sem eigi að styrkja það eftirlit.

Mótmælendur helltu „lúsaeitri“ yfir eldislaxana, sem eiga það til að vera lúsugir.Valgarð Gíslason

Upp á land, segir Bubbi

Bubbi Morthens, sem er mikill laxveiðimaður, segir mótmælin stafa af því að íslensk náttúra eigi undir högg að sækja. 

Bubbi spilaði fyrir mótmælendur. Hann vill eldið á land.Valgarð Gíslason

„Laxeldi á að vera uppi á landi, ég er ekki á móti laxeldi, alls ekki. Þetta snýst ekki um laxveiðimenn, þetta snýst um náttúru Íslands,“ sagði Bubbi sem fullyrðir að firðir landsins verði eyðimörk verði ekkert að gert. 

„En Svandís þú ert að standa þig, þú mátt eiga það. Einn ráðherra og þingmanna á Íslandi,“ sagði Bubbi í lok viðtalsins sem má sjá í heild sinni hér að neðan. 

Sviðin jörð

Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur hjá Laxfiskum ávarpaði einnig fundinn.

„Fyrir lágu sorgleg dæmi frá Noregi, Kanada og öðrum löndum þar sem sjókvíaeldi á laxi hefur verið stundað og skilið eftir sig sviðna jörð. Sjúkdóma, mengaðar ár og sjór og eyðingu laxastofna,“ sagði Jóhannes í ávarpi sem má sjá hér að neðan.

Skilaboðin voru skýr.Valgarð Gíslason
Ungir sem aldnir mótmæltu.Valgarð Gíslason
Mönnum var heitt í hamsi.Valgarð Gíslason


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×