Handbolti

Fær fangelsis­dóm fyrir ansi takt­laust grín á flug­vellinum í Kaup­manna­höfn

Aron Guðmundsson skrifar
Mynd frá flugvellinum í Kaupmannahöfn
Mynd frá flugvellinum í Kaupmannahöfn Vísir/Getty

Þjálfari sænska undir á­tján ára lands­liðs Sví­þjóðar í hand­bolta hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skil­orðs­bundið fangelsi eftir að hafa grínast með að hann hefði í fórum sínum sprengju er hann fór um flug­völlinn í Kaup­manna­höfn.

Það er Ekstra Bladet í Dan­mörku sem greinir frá en um­ræddur þjálfari grínaðist með að í far­angri hans væri sprengja.

Þetta sagði hann er hann fór um flug­völlinn í Kaup­manna­höfn en eins og gefur að skilja er lítill húmor fyrir svona gríni á flug­velli.

Svæðis­dóms­tóllinn í Kaup­manna­höfn hefur dæmt þjálfarann í tveggja mánaða skil­orðs­bundið fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×