Lífið

Náði að yfir­stíga hræðsluna á mótor­hjólinu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, Villi Vill, er viðmælandi í Einkalífinu og ræðir þar meðal annars mótorhjólaáhugann og jógaiðkunina.
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, Villi Vill, er viðmælandi í Einkalífinu og ræðir þar meðal annars mótorhjólaáhugann og jógaiðkunina. Vísir/Vilhelm

„Ég finn mjög mikinn mun á mér þegar ég mæti til starfa hvort ég hef komið á bílnum eða á mótorhjólinu,“ segir Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson sem er viðmælandi í Einkalífinu.

Hér má sjá allt viðtalið við Villa:

Mannbætandi frelsistilfinning

„Bara þessar tíu eða fimmtán mínútur úr Garðabænum niður í 101 Reykjavík á hjólinu þar sem maður er að fá ógrynni af súrefni hjálpa alveg ótrúlega mikið sem upptekt inn í daginn. Svo er það þessi frelsistilfinning, hvort heldur sem ég er á Ítalíu eða Íslandi, bara að fara út á hjólinu, fara eitthvert, geta stoppað hvar sem er og það er engin tónlist, það er ekki neitt, maður er bara einn með sjálfum sér og hugsunum sínum sem getur verið alveg ótrúlega mannbætandi.“

Lífið er stútfullt af krefjandi verkefnum og var mótorhjólaprófið ákveðin áskorun fyrir Villa.

„Nú má ekki hanka mig á þessum ártölum en mig minnir að ég hafi verið með mótorhjólapróf núna í um það bil fimm ár. Fyrst ætlaði ég bara að taka prófið til þess að vera með hjól á Ítalíu og þvælast um þar. Ég var búinn að fara einu sinni á Ítalíu og vera í viku á hjólinu þegar ég kom til baka og ákvað að fjárfesta í hjóli hér, þetta var svo skemmtilegt.

Það tók mig mjög langan tíma að koma mér að því að taka prófið. Ég var svona sirka tíu ár með þrjá eða fjóra mismunandi kennara án þess að klára verklega eða bóklega námið og án þess að fara nokkurn tíma í próf þar sem ég fékk alltaf cold feet, ég bara varð alltaf hræddur.“

„Ég er hættur“

Man Villi sérstaklega eftir einu tilviki þar sem hann var staddur á hjólinu í Ártúnsbrekkunni.

„Það var rigning, pínu rok og það voru tveir stórir átján hjóla trukkar sitt hvorum megin við mig. Og ég bara keyrði út í kant, hringdi í kennarann og sagði bara heyrðu ég er hættur.

En síðan gerðist eitthvað á einhverjum tímapunkti. Eftir því sem ég gerði þetta oftar, eftir því sem ég kynnti mér sportið betur, þá minnkaði þessi hræðsla eða beygur. Síðan á endanum, fyrir um það bil fimm árum, þá kláraði ég verklegu tímana, fór í verklega og bóklega prófið og náði mér í mótorhjólapróf. Það var auðvitað algjörlega frábært.“

Átti að vera með þessum hætti

Allt hefur sinn tíma og segir Villi ekki þýða neitt að ætla að svekkja sig eitthvað á þessu ferli.

„Ég er ekkert að gráta þessi tíu ár sem ég missti af. Þetta var auðvitað bara eitthvað sem átti að vera með þessum hætti.“

Aðspurður hvernig hann yfirvinni hræðslu almennt svarar Villi:

„Það er með einhverjum svona hætti. 

Með því að kynna mér hlutina, með því að taka mér tíma, anda inn í aðstæðurnar og smám saman og yfirleitt þá einhvern veginn hverfur þessi kvíði eða hræðslutilfinning.“
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson yfirstígur hræðslu meðal annars með því að kynna sér hlutina, taka sér tíma og anda inn í þá. Vísir/Vilhelm

Andardrátturinn í daglegu lífi

Villi hefur stundað jóga af miklum krafti síðastliðin tvö ár og segir það fyrst og fremst frábæra hreyfingu. Hann trúi þó ekki endilega á hugmyndafræðina á bak við jóga og aðra andlega hluti.

„En ég trúi svo sannarlega á andardráttinn. Það er eitt af því sem hefur breyst hjá mér. Ég andaði alltaf með munninum áður en ég byrjaði í jóga og ég átti rosalega erfitt með að anda með nefinu. En núna tveimur árum síðar þá hef ég náð stjórn á því og það eru ótrúlega bætt lífsgæði fólgin í þeirri breytingu svo ég segi bara alveg eins og er.

Þú finnur það líka bara þegar þú ert að erfiða, þegar þú ert til dæmis í jóga, hvað allt er miklu léttara þegar þú ert að anda með nefinu. Síðan gerist það stundum þegar þú ert búin að vera lengi að maður bara getur ekki meira og fer að anda með munninum. Þá finnurðu að allt fer niður á við.“


Tengdar fréttir

„Slétt sama hvað fólki finnst um mig“

Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson er með þekktari lögmönnum landsins og hefur meira að segja fengið viðurnefnið stjörnulögmaðurinn. Hann er viðmælandi í nýjasta þætti af Einkalífinu en þáttinn má sjá í heild sinni hér í pistlinum.

Óhefðbundið fjölskyldumynstur Villa Vill: Krafan um normið úrelt árið 2023

„Ég hef verið ástfanginn og ég ætla að leyfa mér að segja að ég hef verið svo heppinn að vera ástfanginn því ég held að það sé ekki sjálfgefið,“ segir lögmaðurinn Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson sem er gestur í Einkalífinu. Viðtalið við hann birtist í fyrramálið klukkan 7.

Edda Lovísa hætt á On­lyFans eftir hótanir og eigið marka­leysi

Edda Lovísa Björgvinsdóttir er hætt að framleiða klám á OnlyFans. Hún segist ekki geta farið lengur ein niðrí bæ og þá hefur hún þurft að flytja eftir að áskrifandi á síðunni komst að því hvar hún átti heima. Hún segist hafa verið hætt að virða eigin mörk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×