Innlent

Bein út­sending: Opnunar­mál­stofa Mennta­kviku 2023

Atli Ísleifsson skrifar
Opnunarmálstofan Menntakviku stendur milli 14:00 og 16:30 í dag.
Opnunarmálstofan Menntakviku stendur milli 14:00 og 16:30 í dag.

Menntakvika – ráðstefna í menntavísindum verður haldin í 27. skipti í dag og á morgun og hefst með sérstakri opnunarmálstofu milli klukkan 14:00 og 16:30 í dag. Hægt verður að fylgjast með málstofunni í beinu streymi að neðan.

Í tilkynningu segir að opnunarmálstofan sé helguð tengslum menntastefnu og farsældar.

„Því er sérstaklega kallað eftir ágripum og málstofum tengt þessum þemum, ásamt öðrum fjölbreyttum viðfangsefnum sem varpa ljósi á grósku á sviði menntavísinda.

Menntakvika leiðir saman á hverju ári fjölda fagfólks og hagsmunaaðila sem láta sig menntun varða. Ráðstefnan fer fram að hausti ár hvert og þar eru kynntar rannsóknir um það sem efst er á baugi í menntavísindum hér á landi,“ segir í tilkynningunni.

Dagskrá opnunarmálstofu

14:00- 14:10 Opnun

  • Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs flytur ávarp.
  • Berglind Rós Magnúsdóttir, prófessor og deildarforseti deildar menntunar og margbreytileika, kynnir aðalfyrirlesara.

14:10-14:50 Aðalerindi/ Keynote

  • Gita Steiner-Khamsi, Teachers College, Columbia University, New York, Fulbright Scholar.
  • The use and abuse of research evidence for policy and planning in education
  • Sjá nánar um erindi hér

14:50- 15:00 Stutt kaffihlé 

15:00 –16:00 Málstofa – Menntastefna og farsæld

  • Fundarstjóri: Ingvi Hrannar Ómarsson, grunnskólakennari og sérfræðingur hjá mennta- og barnamálaráðuneyti
  • Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra flytur ávarp.
  • Ragný Þóra Guðjohnsen, lektor og faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Íslenska æskulýðsrannsóknin: Fullur pottur af rannsóknartækifærum á farsæld barna og ungmenna.
  • Helgi Arnarson, sviðsstjóri Menntasviðs Reykjanesbæjar. Samspil menntunar og velferðar og komið inn á áherslur í skólakerfinu sem eru líklegar til að stuðla að farsæld allra barna.
  • Sólveig Sigurðardóttir, lektor við félagsráðgjafardeild HÍ og deildarstjóri farsældarþjónustu barna hjá Akraneskaupstað. Heildstæða farsældarþjónustu fyrir öll börn og innleiðingu farsældarlaga á Akranesi.
  • Susan Elizabeth Gollifer, lektor við Menntavísindasvið, Deild menntunar og margbreytileika. Hugleiðingar um menntun, velferð og mannréttindi / Reflections on education, wellbeing and human rights.

-Pallborðsumræður-

16:00-16:30 Ávarp rektors

  • Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands flytur ávarp.

Afhending styrkja til doktorsnema og fræðimanna á sviði menntunar úr Þuríðarsjóði og Steingrímssjóði



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×