Lífið

Andrea Eyland flutt til Danmerkur

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Andrea Eyland er flutt til Danmerkur.
Andrea Eyland er flutt til Danmerkur. Andrea Eyland.

Andrea Eyland þáttastjórnandi Kviknar hlaðvarpsins er flutt frá Íslandi til Danmerkur. Þetta segir Andrea á Instagram þar sem hún tekur við spurningum fylgjenda sinna um breytta stöðu.

Andrea virðist strax vera komin í danskan gír en hún birti mynd af sér á hjólinu með tvö ung börn sín í körfu að framan. Það gerist ekki mikið danskara en það.

Andrea sagði ekki tímabært að ræða nánar við blaðamann um flutningana, umfram það sem fram kemur á Instagram-síðu hennar. Nóg virðist að gera hjá henni en hún segir massívan vinnudag hafa verið á dagskrá í gær.

Tíu manna fjölskylda

Andrea og barnsfaðir hennar Þorleifur Kamban hafa staðið í ströngu undanfarin ár við byggingu einbýlishúss í Ölfusi sem ber heitið, Kambey hlýjuhof, og er hluti af stærra verkefni þeirra. 

„Eðlileg framvinda á Kviknar verkefninu er að bjóða upp á stað fyrir þessa foreldra sem við erum í stanslausum samskiptum við, til þess að koma og endurhlaða sig í þessu hlutverki. Koma og hitta aðra foreldra í sömu sporum, slaka á, sofa út, fá morgunkaffi í rúmið,“ sagði Andrea í hlaðvarpi sínu um verkefnið í lok árs 2020. 

Í húsinu eru níu svefnherbergi, þar af  hjónaherbergi og nóg að herbergjum fyrir börnin átta sem þau eiga samtals saman og úr fyrri samböndum.

Andrea og Þorleifur sýndu frá byggingarferlinu í  sjónvarpþættinum Gulli byggir á Stöð 2 í september í fyrra. Stikluna úr þættinum má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×