Lífið

Eigandi Kjötkompaní selur Hafnarfjarðarhöllina

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Húsið er byggt árið 2009 og hefur verið vel við haldið síðastliðin ár.
Húsið er byggt árið 2009 og hefur verið vel við haldið síðastliðin ár.

Matreiðslumeistarinn og eigandi Kjötkompanís Jón Örn Stefánsson og Hildur Sigrún Guðmundsdóttir hafa sett glæsilegt parhús sitt í Ásunum í Hafnarfirði til sölu. Ásett verð er 189,9 milljónir.

Um er að ræða 300 fermetra hús á tveimur hæðum við Furuás 12, þar af er 37 fermetra bílskúr. Húsið var byggt árið 2009 og hefur verið vel við haldið síðastliðin ár. 

Fram kemur í lýsingu eignarinnar á fasteignavef Vísis að eldhús, borðstofa og stofa eru í samliggjandi opnu og björtu rými með stórum gólfsíðum gluggum með góðu útsýni yfir Heiðmörk og Setbergið.

Þrjú svefnherbergi eru í húsinu auk tveggja baðherbergja, þvottahúss, fataherbergis og geymslu. Fyrir framan húsið er stór og afgirt timburverönd með notalegri grillaðstöðu. Að neðanverðu er annar sólpallur og snyrtilegur garður.  

Húsið er rúmlega 300 fermetrar að stærð.Fasteignaljósmyndun
Stór afgirt timburverönd er fyrir framan húsið og sólpallur við garð að neðan verðu.Fasteignaljósmyndun
Komið er inn í húsið á efri hæð sem skiptist í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp.Fasteignaljósmyndun
Eldhús, stofa og borðstofa eru í björtu og samliggjandi rými með miklu útsýni.Fasteignaljósmyndun
Gólfsíðir gluggar er í borðstofu með stórbrotnu útsýni.Fasteignaljósmyndun
Eldhús er stílhreint með hvítri innrétting með dökkri borðplötu.Fasteignaljósmyndun
Gott skápapláss er í eldhúsi. Auk þess er stór Smeg gas-eldavél og háfur, innbyggð uppþvottavél og rými fyrir tvöfaldan ísskáp.Fasteignaljósmyndun
Steyptur stigi er niður á neðri hæð með handriði úr gleri. Fasteignaljósmyndun
Á neðri hæð er komið niður í stofu með stórum gluggum. Þar er rúmgóð sjónvarpsstofa.Fasteignaljósmyndun
Stórt hjónaherbergi með fataherbergi inn af er innst á gangi.Fasteignaljósmyndun
Baðherbergi í húsinu eru tvö. Fasteignaljósmyndun
Rúmgott barnaherbergi er við hlið hjónaherbergis.Fasteignaljósmyndun
Bakgarður er snyrtilegur búinn timbuverönd.Fasteignaljósmyndun





Fleiri fréttir

Sjá meira


×