Lífið

Þjóð­leik­húsið leitar að góðum úti­legu­sögum

Íris Hauksdóttir skrifar
Þjóðleikhúsið leitar að sögum úr útilegum fyrir nýtt íslenskt gamanleikrit, Eltum veðrið.
Þjóðleikhúsið leitar að sögum úr útilegum fyrir nýtt íslenskt gamanleikrit, Eltum veðrið. aðsend

Þjóðleikhúsið frumsýnir glænýtt gamanverk í byrjun næsta árs en leikhópurinn setur sjálfur verkið saman. Útgangspunktur verksins er hefð Íslendinga að elta góða veðrið í sumarfríinu. 

Leikritið, Eltum veðrið verður frumsýnt í mars á næsta leikári. Leikarar sýningarinnar fengu frjálsar heldur til að setja á svið nýja gleðisýningu. Eins og titillinn gefur til kynna fjallar verkið um hefð Íslendinga að elta góða veðrið. Sýningin er að hluta til byggð á reynslusögum úr ýmsum áttum tengdum útilegum. Í kjölfarið biðlar leikhópurinn til íslensku þjóðarinnar að deila skemmtilegum reynslusögum sem nýst geta við gerð handritsins. 

Áhugasamir eru hvattir til að senda sína sögu á netfangið eltumvedrid@leikhusid.is. Þau sem senda athyglisverðustu sögurnar fá boðsmiða á forsýningar.

Glænýtt íslenskt gamanleikrit sem lofar góðu.

Á vef Þjóðleikhússins segir: 

Hefur þú einhvern tímann reynt að tjalda? Gleymt tjaldhælunum? Eða því hvaða tjaldsúla á að vera hvar? Verið með allt tilbúið á grillið en gaskúturinn er tómur? Skilið tengdamömmuboxið eftir opið og brunað af stað? Vaknað í rennblautu tjaldi, á lekri vindsæng? Opnað myglaðan svefnpoka? Heyrt ókennileg hljóð úr næsta tjaldi? Sofnað í tjaldi en vaknað í húsbíl? Ákveðið að skilja við maka þinn eftir útilegu? Langað til að skipta um ríkisfang eftir verslunarmannahelgi? Uppgötvað að þú sért kannski meira fyrir hótel þegar upp er staðið? Eða kannski kynnst æðislegu fólki á tjaldstæðinu? Og fundið þitt innra sjálf innan um mosann, sóleyjarnar og blágresið? Þá er þetta sýning fyrir þig!


Leikhópinn skipa: Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson, Hilmar Guðjónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×