Innlent

Björgunar­sveitar­maður slasaðist við gos­stöðvarnar

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Björgunarsveitarmaður velti fjórhjóli við gosstöðvarnar í gær. Mynd tengist frétt ekki beint og er af eldgosinu í Meradölum í fyrra.
Björgunarsveitarmaður velti fjórhjóli við gosstöðvarnar í gær. Mynd tengist frétt ekki beint og er af eldgosinu í Meradölum í fyrra. Vísir/Vilhelm

Björgunarsveitarmaður velti fjórhjóli við gosstöðvarnar við Litla-Hrút í gærkvöldi. Hann var í kjölfarið fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann.

Samkvæmt heimildum fréttastofu er viðkomandi frá Björgunarsveitinni Björg á Eyrarbakka. Félagar hans úr Björg komu að honum og virtist hann vera alvarlega slasaður.

Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, staðfesti við fréttastofu að björgunarsveitarmaður hefði slasast við gosstöðvarnar í gær.

„Okkar maður velti fjórhjóli á gönguleið A, sem kölluð er, í S-beygjum,“ sagði Jón Þór.

Hins vegar gat Jón Þór ekki greint frá því hve slasaður viðkomandi var. Þó gat hann sagt að ekki hefði þurft þyrlu til að ferja viðkomandi heldur var hann fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×