Erlent

Systir Ásu Ellerup: „Við höfum ekki heyrt neitt frá henni“

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Líkt og fram kom í frétt Vísis um daginn er hin 59 ára gamla Ása ekki grunuð um aðkomu að morðunum.
Líkt og fram kom í frétt Vísis um daginn er hin 59 ára gamla Ása ekki grunuð um aðkomu að morðunum. Samsett

Fjölskylda Ásu Ellerup, eiginkonu Rex Heuermann, hefur enga hugmynd um hver staðan er á henni þessa dagana eða hvar hún er niðurkomin. Þetta kemur fram í frétt á vef Daily Mail þar sem rætt er við Jóhönnu Ellerup, systur Ásu og mágkonu Heuermann.

Rex Heuermann var handtekinn í New York þann 13. júlí síðastliðinn og er ákærður fyrir að myrða þrjár konur. Hann er einnig grunaður um að hafa myrt þá fjórðu. Spjótin beindust meðal annars að honum vegna DNA-sýnis sem fannst á konunum þremur og talið er vera af eiginkonu hans, Ásu Ellerup.

Heuermenn hefur lýst yfir yfir sakleysi sínu í málinu.

Fram kemur í frétt sem birtist á vef Daily Mail fyrr í dag að Jóhanna, systir Ásu, sé lyfjafræðingur og búsett í tólf kílómetra fjarlægð frá heimili systur sinnar og Heuermann á Long Island.

Hún segist ekkert hafa heyrt í Ásu síðan Heuermann lýsti yfir sakleysi sínu.

„Við höfum ekki heyrt neitt frá henni, og við erum ekki með neitt heimilisfang á hana. Við vitum ekkert,“ segir Jóhanna í samtali við blaðamann Daily Mail. 

„Ég get svarið það, við vitum ekkert meira en þið. Við vitum ekki neitt.“

Bandarískir miðlar hafa greint frá því að Ása hafi verið viðstödd þegar Heuermann mætti fyrir dóm og lýsti yfir sakleysi sínu.Facebook

Blaðamaður Daily Mail, sem ræddi við Jóhönnu á heimili hennar segir föður Jóhönnu einnig hafa verið staddan þar þegar viðtalið fór fram. Að sögn Jóhönnu er málið „yfirþyrmandi“ fyrir föður hennar.

Líkt og fram kom í frétt Vísis um daginn er hin 59 ára gamla Ása ekki grunuð um aðkomu að morðunum. Samkvæmt gæsluvarðhaldskröfu saksóknara var hún stödd á Íslandi þegar ein konan var myrt og ekki heima þegar hinar tvær voru myrtar.

Fjölmiðlar ytra eins og New York Post og Daily Mail hafa nafngreint Ásu og birt myndir af henni. Post hefur eftir nágrönnum hjónanna að þau hafi alið upp tvö börn en Ása Ellerup er önnur eiginkona hans og saman eiga þau eina dóttur. Samkvæmt frétt Post átti Ása annað barn úr fyrra sambandi.

Bandarískir miðlar hafa greint frá því að Ása hafi verið viðstödd þegar Heuermann mætti fyrir dóm og lýsti yfir sakleysi sínu.

Í samtali við CNN síðastliðinn mánudag sagði Erin Burnett lögreglustjóri í Suffolk að miðað við viðbrögð Ásu og barnanna þegar þeim var greint frá brotum Heuermann þá sé ólíklegt að þau hafi haft nokkra vitneskju um málin.


Tengdar fréttir

Ýmist lýst sem ógnvekjandi nágranna eða tryggum fjölskylduföður

Það tók rannsakendur fimmtán ár að komast á snoðir um það hver morðinginn, að baki „morðunum á Gilgo ströndinni“, væri. Rannsakendur telja sig hafa fundið morðingjann, Rex Heuermann, sem hefur lifað tvöföldu lífi á Long Island í New York undanfarna áratugi. Honum er bæði lýst sem samviskusömum fjölskyldumanni og ógnvekjandi nágranna með stuttan þráð. 

Grunaður raðmorðingi giftur íslenskri konu

Maðurinn, sem handtekinn var í New York í gær og er ákærður fyrir að myrða þrjár konur, er giftur íslenskri konu. Spjótin beindust meðal annars að honum vegna DNA-sýnis sem fannst á konunum þremur og talið er vera af íslensku konunni.

Skæður raðmorðingi loks gómaður

Lögreglan í New York hefur handtekið mann sem grunaður er um aðild að „Morðunum á Gilgo Beach“ svokölluðu. Hann er talinn hafa myrt nokkrar konur en líkamsleifar ellefu manns hafa fundist við rannsókn morðanna frá árinu 2010.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×