Innlent

Slösuð kona sótt á skjálfta­svæðið og margir á vappi

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Björgunarsveitin Þorbjörn fékk útkall að jarðskjálftasvæðinu vegna konu sem hafði slasað sig á göngu.
Björgunarsveitin Þorbjörn fékk útkall að jarðskjálftasvæðinu vegna konu sem hafði slasað sig á göngu. Vísir/Vilhelm

Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík fékk útkall klukkan 12:45 vegna konu sem hafði slasað sig á skjálftasvæðinu milli Keilis og Fagradalsfjalls. Aðgerðum lauk um klukkan tvö en mikil umferð ferðamanna er á svæðinu. Fólk er beðið að fara varlega á svæðinu.

Sex björgunarsveitarmenn ásamt sjúkraflutningamönnum og lögreglu fóru á staðinn til að sækja konuna, sem hafði slasað sig við göngu. Guðni Oddgeirsson, björgunarsveitarmaður hjá slysavarnadeidinni Þorbirni í Grindavík, segir konuna ekki hafa verið mjög illa slasaða. Hægt hafi verið að flytja hana sitjandi niður.

„Þegar þetta er utandyra er þetta alltaf hækkaður forgangur þó það sé svona gott veður,“ segir Guðni. 

Mikill fjöldi ferðamanna er á svæðinu og segir Guðni engar lokanir vera á svæðinu núna. Ekki komi til þess nema gjósi. 

„Ef við ætluðum að vera í því að stýra umferð þá myndum við ekki gera neitt annað,“ segir Guðni. 

„Það er búið að vera margt fólk á svæðinu síðan byrjaði að gjósa 2021 og hafa alltaf verið á hverjum tíma 30-50 bílar á svæðinu, sama hvernig viðrar. Miðað við hvernig veðrið er hérna í Grindavík, býst ég við allverulega mörgu fólki þarna uppfrá.“

Hann segir að allir sem komi inn á svæðið fái viðvörunarskilaboð í símann frá almannavörnum. 

„Það er bara viðvörun við því að það gæti eitthvað farið í gang og jarðskjálftar gætu losað um grjót í hlíðum. Þannig að fólk er beðið að vera ekki undir bröttum hlíðum og ef það fer eitthvað af stað þá að passa sig. Það er svo heldur ekki mikill vindur og þá getur gas safnast saman í lægðum. Það er það varhugaverða í þessu öllu núna.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×