Innlent

Skorar á stjórn­endur Ís­lands­banka að birta sáttina í dag

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
„Ég gef lítið fyrir þau orð bankastjórans að þau séu að draga lærdóm af þessu,“ segir Lilja Alfreðsdóttir.
„Ég gef lítið fyrir þau orð bankastjórans að þau séu að draga lærdóm af þessu,“ segir Lilja Alfreðsdóttir. Vísir/Vilhelm

Menningar- og viðskiptaráðherra skorar á stjórnendur Íslandsbanka að birta sátt sem bankinn gerði við Fjármálaeftirlitið, ekki síðar en í dag. Hún segir framkomu stjórnenda bankans í garð almennings einkennast af virðingarleysi.

Líkt og greint hefur verið frá undanfarna daga hefur Íslandsbanka verið gert að greiða tæpa 1,2 milljarða króna í sekt vegna brota á reglum við framkvæmd útboðs Bankasýslu ríkisins á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

Málavextir eru enn nokkuð á huldu en bankinn þáði boð fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands um að ljúka málinu með sátt.

Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra gagnrýnir harðlega að sátt hafi enn ekki verið birt.

„Tilkynningin frá bankanum birtist á fimmtudagskvöldið og nú er kominn sunnudagur. Enn hefur skýrslan ekki birst og ég skora á stjórnendur bankans að birta skýrsluna í dag,“ segir Lilja.

Framkoma stjórnenda bankans einkennist af virðingarleysi

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hefur sagt að brotalamir hafi verið á framkvæmdinni á sölu í hlut bankans. Hún viðurkennir alvarleg brot bankans og biðst afsökunar á mistökum við sölu hans en hyggst ekki láta af störfum sem bankastjóri.

Lilja gefur ekki mikið fyrir þessi viðbrögð. 

„Nú er það svo að núverandi bankastjóri Íslandsbanka var lykilmanneskja í íslensku bankakerfi fyrir hrun. Ég gef lítið fyrir þau orð bankastjórans að þau séu að draga lærdóm af þessu. Íslenskur almenningur á enn stóran hlut í bankanum og mér finnst framkoma stjórnenda bankans í garð eigandans einkennast af virðingarleysi.“

Lilja segir bankann þurfa að byggja upp traust aftur.

„Ég tel mjög mikilvægt til að hægt sé að gera það þurfi öll gögn að liggja á borðinu svo að við áttum okkur á því hvers vegna Íslandsbanki sem er, og ég ítreka, enn að stórum hluta enn í eigu almennings að greiða stærstu fésekt Íslandssögunnar.“

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra hefur gefið út að hann muni ekki tjá sig um málið fyrr en eftir helgi. Lilja gerir ráð fyrir því að hann sé að bíða eftir sáttinni.

„En eins og ég segi, til að byggja upp traust þá þurfum við að hafa þessi gögn, og ég geri stóra athugasemd við það að þegar Íslandsbanki verður uppvís að slíkum brotum  að þeir sjái ekki sóma sinn í því að birta skýrsluna strax. Og þess vegna er ég að tjá mig um málið.“

Uppfært 12:25.

Edda Hermannsdóttir, samskiptastjóra Íslandsbanka, vildi árétta í kjölfar fréttarinnar að Íslandsbanki birti ekki skýrsluna heldur Fjármálaeftirlitið. 

Stjórn bankans hefur gefið það út að þau munu ekki tjá sig frekar um niðurstöður sáttarinnar fyrr en hún hefur verið gerð opinber. 


Tengdar fréttir

Seðla­bankinn hafi viljað gefa „á­kveðin skila­boð“ út á markaðinn

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, telur að sektarfjárhæðin, 1.160 milljónir króna, sem bankinn hefur fallist á að greiða vegna brota á lögum og innri reglum félagsins við sölu á hlutum í sjálfum sér, endurspegli það að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hafi viljað gefa „ákveðin skilaboð“ út á markaðinn.

„Það er enn fullt af spurningum ósvarað“

Kristrún Frostadóttir segir ljóst að ekki var vel staðið að sölu Íslandsbanka. Með niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins sé komin önnur rannsóknin sem sýni að pottur var verulega brotinn í ferlinu. Ríkisstjórnin þurfi að taka forystu í málinu og setja á fót rannsóknarnefnd.

Sektin „tölu­vert hærri“ en markaðurinn gerði ráð fyrir

Sú sektarfjárhæð sem Íslandsbanki hefur fallist á að greiða upp á 1.160 milljónir vegna brota á lögum og innri reglum félagsins við sölu á hlutum í sjálfum sér er fordæmalaus ef litið er til þeirra sekta sem hafa verið lagðar á eftirlitsskylda aðila þegar málum hefur lokið með sátt við fjármálaeftirlitið.

Ís­lands­banki sektaður um rúman milljarð vegna út­boðsins

Íslandsbanki hefur þegið boð fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands um að ljúka málinu um útboð á hlutum bankans með sátt. Íslandsbanki mun greiða rúman milljarð í sekt vegna alvarlegra brota sem hann gengst við. Þrátt fyrir þetta hækka afkomuspár bankans.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×