Lífið

Atli Fannar og Lilja eiga von á öðru barni

Íris Hauksdóttir skrifar
Atli Fannar og Lilja fagna komu erfingja.
Atli Fannar og Lilja fagna komu erfingja.

Atli Fann­ar Bjarka­son fjöl­miðlamaður og Lilja Kristjáns­dótt­ir lög­fræðing­ur eiga von á sínu öðru barni en fyrir á parið soninn Tind sem er á sjötta aldursári.

Atli og Lilja hafa verið sam­an um ára­bil en þau tilkynntu um fjölgunina í fjölskyldunni á Instagram nú fyrir stuttu. 

„Skelltum okkur í kærkomna ferð til Katalóníu og vörðum þar frábærum dögum í enn betri félagsskap. Miðað við myndirnar er kannski óþarfi að bíða lengur með aðrar fréttir: Tindur verður stóri bróðir í desember og við erum öll gríðarlega spennt.“

Atli stofnaði fjöl­miðil­inn Nú­tím­ann á sín­um tíma en færði sig yfir til Rík­is­út­varps­ins fyr­ir nokkr­um árum. Lilja er lög­fræðing­ur frá Há­skól­an­um í Reykja­vík. Samhliða því er parið meðeig­end­ur í lík­ams­rækt­ar­stöðinni Af­rek.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×