Handbolti

Tveir Íslendingar tilnefndir sem þeir bestu

Sindri Sverrisson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson og Viktor Gísli Hallgrímsson glaðbeittir með félögum sínum í íslenska landsliðinu eftir að hafa unnið sinn undanriðil fyrir EM sem fram fer í janúar.
Gísli Þorgeir Kristjánsson og Viktor Gísli Hallgrímsson glaðbeittir með félögum sínum í íslenska landsliðinu eftir að hafa unnið sinn undanriðil fyrir EM sem fram fer í janúar. VÍSIR/HULDA MARGRÉT

Tveir af strákunum okkar í íslenska landsliðinu í handbolta eru á meðal þeirra sem tilnefndir eru sem bestu leikmenn ársins í kosningu evrópska handknattleikssambandsins, EHF.

Kosið er um besta leikmann í hverri stöðu og er Viktor Gísli Hallgrímsson, sem spilar með franska liðinu Nantes, tilnefndur sem besti markvörðurinn. Gísli Þorgeir Kristjánsson, sem spilar með þýska liðinu Magdeburg, er tilnefndur sem besti leikstjórnandinn.

Sjö leikmenn eru tilnefndir í hverri stöðu og er einnig kosið um besta varnarmann, auk þess sem nýliði ársins verður valinn.

Kosningin er í höndum leikmanna, þjálfara, fjölmiðla og stuðningsmanna, og fær hver hópur 25% vægi. Úrslitin verða svo tilkynnt á verðlaunahófi EHF í Vínarborg 26. júní.

Ómar Ingi Magnússon er ekki í hópi þeirra sjö sem þykja bestu hægri skyttur ársins en þar er liðsfélagi hans og Ómars hjá Magdeburg, Hollendingurinn Kay Smits, sem leysti Ómar af hólmi vegna meiðsla Selfyssingsins. Ómar gat ekkert spilað með Magdeburg eftir HM í janúar vegna meiðsla.

Tilnefndingarnar má sjá hér að neðan.

Vinstra horn

  • Sebastian Barthold - NOR / Aalborg Håndbold
  • Timur Dibirov - RUS / HC PPD Zagreb
  • Angel Fernandez Perez - ESP / Limoges Handball
  • Lukas Mertens - GER / SC Magdeburg
  • Lovro Mihic - CRO / Orlen Wisla Plock
  • Valero Rivera Folch - ESP / HBC Nantes
  • Milos Vujovic - MNE / Füchse Berlin

Vinstri skytta

  • Mykola Bilyk - AUT / THW Kiel
  • Antonio Garcia Robledo - ESP / Fraikin BM Granollers
  • Rasmus Lauge - DEN / Telekom Veszprem HC
  • Elohim Prandi - FRA / Paris Saint-Germain Handball
  • Simon Pytlick - DEN / GOG
  • Sander Sagosen - NOR / THW Kiel
  • Szymon Sicko - POL / Barlinek Industria Kielce

Leikstjórnandi

  • Luka Cindric - CRO / Barça
  • Igor Karacic - CRO / Barlinek Industria Kielce
  • Gisli Kristjansson - ISL / SC Magdeburg
  • Nedim Remili - FRA / Telekom Veszprem HC
  • Diego Simonet - ARG / Montpellier HB
  • Luc Steins - NED / Paris Saint-Germain Handball
  • Aleks Vlah - SLO / RK Celje Pivovarna Laško

Hægri skytta

  • Alex Dujshebaev - ESP / Barlinek Industria Kielce
  • Mathias Gidsel - DEN / Füchse Berlin
  • Dainis Kristopans - LAT / Paris Saint-Germain Handball
  • Emil Madsen - DEN / GOG
  • Dika Mem - FRA / Barça
  • Kay Smits - NED / SC Magdeburg
  • Faruk Yusuf - NGR / Fraikin BM Granollers

Hægra horn

  • Niclas Ekberg - SWE / THW Kiel
  • Blaz Janc - SLO / Barça
  • Hans Lindberg - DEN / Füchse Berlin
  • Arkadiusz Moryto - POL / Barlinek Industria Kielce
  • Bogdan Radivojevic - SRB / OTP Bank - Pick Szeged
  • Ferran Sole Sala - ESP / Paris Saint-Germain Handball
  • Hákun West Am Teigum - FAR / Skanderborg-Aarhus

Línumaður

  • Ludovic Fabregas - FRA / Barça
  • Johannes Golla - GER / SG Flensburg-Handewitt
  • Victor Iturizza Alvarez - POR / FC Porto
  • Lukas Jørgensen - DEN / GOG
  • Artsem Karalek - BLR / Barlinek Industria Kielce
  • Veron Nacinovic - CRO / Montpellier HB
  • Kamil Syprzak - POL / Paris Saint-Germain Handball

Markvörður

  • Ignacio Biosca Garcia - ESP / Orlen Wisla Plock
  • Benjamin Buric - BIH / SG Flensburg-Handewitt
  • Viktor Hallgrímsson - ISL / HBC Nantes
  • Niklas Landin Jacobsen - DEN / THW Kiel
  • Gonzalo Perez de Vargas Moreno - ESP / Barça
  • Tobias Thulin - SWE / GOG
  • Andreas Wolff - GER / Barlinek Industria Kielce

Varnarmaður

  • Blaz Blagotinsek - SLO / Frisch Auf Göppingen
  • Alexandre Cavalcanti - POR / HBC Nantes
  • Matej Gaber - SLO / OTP Bank - Pick Szeged
  • Tomasz Gebala - POL / Barlinek Industria Kielce
  • Thiagus Petrus Gonçalves dos Santos - BRA / Barça
  • Simon Hald Jensen - DEN / SG Flensburg-Handewitt
  • Henrik Møllgaard Jensen - DEN / Aalborg Håndbold



Fleiri fréttir

Sjá meira


×