Lífið

Núðlu­réttur sem leikur við bragð­laukana

Aníta Guðlaug Axelsdóttir skrifar
Pad thai sem þú mátt ekki láta framhjá þér fara.
Pad thai sem þú mátt ekki láta framhjá þér fara. Vísir/Ívar Fannar

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og munu þeir koma inn vikulega. Í þetta skiptið er það taílenskur núðluréttur sem leikur við bragðlaukana.

Klippa: Helvítis kokkurinn - Spæsí Pad thai með kjúklingi

Spæsí pad thai með kjúklingi

Uppskrift fyrir 6-8 manns

  • 6 kjúklingalæri frá Kjarnafæði skorin í ræmur
  • 2 msk sojasósa
  • 3 msk sriracha sósa
  • Salt
  • Egg
  • 1 pakki hrísgrjóna núðlur
  • 100 gr muldar salthnetur
  • 1 pakki Alfa alfa baunaspírur

Pad thai sósa:

  • 2 msk olía
  • 2 tsk fiskisósa
  • 200 gr púðursykur
  • Safi úr 2 lime
  • 5 gr engifer
  • 2 hvítlauksrif
  • 2 shallot laukar
  • 1 heill habanero
  • 1 heill blaðlaukur
  • 1 msk chili sambal
  • 2 msk sojasósa


Aðferð:

  1. Sjóðið vatn í stórum potti. Slökkvið undir suðu og setjið núðlur út í í 3-4 mínútur með lokið á. Kælið í vatni og sigtið.
  2. Skerið læri niður í strimla og setjið í skál ásamt sojasósu. Marinerið í um eina klukkustund. Steikið kjúkling á pönnu í 3-4 mínútur á háum hita. Setjið á fat og til hliðar.
  3. Saxið shallot lauk, habanero, engifer, hvítlauk og hvíta hlutann af blaðlauknum. Steikið í olíu á pönnu á lágum hita í 5 mínútur. Bætið út á pönnu púðursykri, hrísgrjónaediki, chilli mauki, fiskisósu, soja og lime á pönnu. Hellið soði af kjúlla á sósupönnu og sjóðið í 10 mínútur. Hellið sósu í skál.
  4. Skerið græna hlutann af blaðlauknum niður. Steikið eggið á wokpönnu á háum hita. Bætið við núðlum og haldið áfram að steikja. Hellið út á einni ausu af sósunni. Bætið kjúklingi saman við og smá sósu. Steikið í nokkrar mínútur.
  5. Berið fram með hnetum, baunaspírum og fersku lime.
Vísir/Ívar Fannar

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem kennir ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og koma þeir inn vikulega.

Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.


Tengdar fréttir

Tuddi með hvít­lauks- og eld­­pipar­­mæjó

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og munu þeir koma inn vikulega. Í þetta skiptið er það pönnusteikt nautalund með hvítlauks- og eldpiparmæjó, getur ekki klikkað!

Grillaðar kótilettur með guðdómlegri sultu

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og munu þeir koma inn vikulega. Í þetta skiptið er það gamli skólinn á nýja mátann, hér eru kótilettur með brennivíns-beikon sultu, kartöflum og gulrótum í hvítlaukssmjöri.

Stút­fyllt svína­lund með sæt­kar­töflu­salati

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og munu þeir koma inn vikulega. Í þetta skiptið er það stútfyllt svínalund með sveppakremi og sætkartöflu- og döðlusalati sem snertir alla bragðlaukana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×