Handbolti

„Ég bregst liðinu mínu þar og tek það á mig“

Kári Mímisson skrifar
Sigursteinn í leik kvöldsins.
Sigursteinn í leik kvöldsins. Vísir/Vilhelm

Sigursteinn Arndal var skiljanlega afar svekktur þegar hann mætti í viðtal strax eftir grátlegt tap FH gegn ÍBV nú í kvöld. Tapið þýðir að FH er úr leik í úrslitakeppninni og þarf að gera sumarfrí sér að góðu. ÍBV sópar sínu öðru einvígi í þessari úrslitakeppni og líta mjög vel út þessa stundina.

„Það er bara erfitt að finna orð, ég er ógeðslega svekktur en á sama tíma rosalega stoltur af mínu liði og hvernig við fórum í gegnum þetta. Ég ætla ekki að ljúga neinu, þetta var risa högg að tapa síðasta leik þar sem við spiluðum leikinn alveg frábærlega. Köstum því frá okkur en mættum hér í dag í hörku leik,“ sagði afar svekktur Sigursteinn eftir leikinn í kvöld og hélt svo áfram.

„Þeir voru klárir og þetta var gríðarlega erfiður leikur en við sýndum mikinn karakter að tryggja okkur inn í framlenginguna. Í framlengingunni þá gerast hlutir sem að ég verð að taka á mig. Ég fæ tvær mínútur á rándýrum tímapunkti. Ég bregst liðinu mínu þar og tek það á mig en ég verð að segja það að við erum á mjög vondum stað og ef að tilfinningar eins og það að ég hoppi upp af bekknum og reyni að framkalla dóm, sem við fengum því það var fótur þarna.“

„Ef að þetta er stærsti glæpur sem hægt er að gera í framlengingu þá erum við á vondum stað. Mér fannst dómararnir algjörlega bregðast þar og þetta er krúsíal móment. Ég vil undirstrika að ég er ótrúlega stoltur af liðinu mínu og hvernig þeir tækluðu þennan leik. Þetta er búið að vera frábær vetur og við náðum okkur í 31 stig, fórum í gegnum átta liða úrslitin sem einhverjir voru búnir að segja að væri hindrun og við töpuðum 3-0 fyrir ÍBV og mig langar að óska þeim til hamingju með það, þeir voru frábærir en ég er mjög stoltur af liðinu mínu í vetur.“

Atvikið sem hafði hvað mest áhrif á leikinn var þegar að Sigursteinn fær tveggja mínútna brottvísun fyrir eitthvað sem gerist á bekknum. Dagur Arnarsson virðist fá boltann í fótinn en í stað þess að fá boltann fá FH tveggja mínútna brottvísun, sagði Sigursteinn ekkert við dómarann?

„Ég tek það algjörlega á mig að í öllum hamaganginum þá hoppa ég upp af bekknum. Maður er vissulega ekki einhver 75 kíló þannig að þetta sést. Ég var ekki orðljótur eða þess háttar. Ég hoppa til að vekja athygli á þessu og fyrir það fæ ég tvær mínútur.“

Jóhannes Berg Andrason skoraði flautumark og tryggði FH framlengingu. Hvernig voru tilfinningarnar eftir það?

„Yndislegar og frábærar. Við vorum nýbúnir að klikka á víti þarna rétt á undan en gáfum okkur tíma og sýnum þá ró sem þurfti og uppskerum frábært mark. Þannig mjög svekkjandi að það skyldi ekki gilda, mómentið fór þarna seinna í framlengingunni.“

Sigursteinn gat leyft sér að brosa þegar FH kom leiknum í framlengingu.Vísir/Vilhelm

Phil Döhler, markvörður FH hefur verið frábær í vetur. Hann er nú að verða samningslaus og á sama tíma hefur FH samið við Daníel Frey Andrésson um að leika með liðinu á næsta ári. Sigursteinn segir að Döhler vilji reyna fyrir sér í stærri deild en sé þó alltaf velkominn aftur í Kaplakrika.

„Mál Phil Döhlers eru ekki ljós og það eina sem er öruggt er að Phil hefur haft áhuga á því að fara út og reyna fyrir sér í stærri deild. Við höfum allan tíman sagt það að við styðjum hann í því. Phil Döhler verður alltaf velkominn í FH ef að það er það sem hann vill. Við höfum átt mjög gott samtal við Phil enda hefur hann þjónustað okkur frábærlega síðustu ár en hugur hans stefnir í stærri deild. “


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×