Lífið

Þórunn Antonía selur slotið í Hveragerði

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Þórunn Antonía selur einbýlishúsið í Hveragerði.
Þórunn Antonía selur einbýlishúsið í Hveragerði. Undireins

Tónlistarkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir hefur sett einbýlishús sitt við Dynskóga í Hveragerði til sölu.

Um er að ræða rúmlega 190 fermetra hús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum, eldhúsi og stofu í samliggjandi rými, tveimur baðherbergi og þvottahúsi. Auk þess hefur bílskúrinn verið innréttaður sem íbúð.

Garðurinn er stór og skjólsæll með sólpalli til suðurs og heitum potti.

„Þetta hús hefur svo einstaka orku og fegurð og umvefur mann,“ skrifar Þórunn Antonía um eignina á samfélagsmiðlum. Hún hefur leigt út húsið síðastliðin ár sökum vinnu í höfuðborginni.

Nánari upplýsingar um eignina má finna á fasteignavef Vísis.

Garðurinn er stór og skjólsæll með góðri verönd og heitum potti.Lind fasteignasala
Útgengt er úr flísalagðri stofu á pallinn.Lind fasteignasala
Hvít og tímalaus eldhúsinnrétting með granít stein á borðum.Lind fasteignasala
Stofa og eldhús er í sama og opna rýminu.Lind fasteignasala
Baðherbergið er nýlega endurnýjað.Lind fasteignasala


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×