Bíó og sjónvarp

Kim Kar­dashian sýnir ógn­vekjandi hliðar

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Kim Kardashian mun leika á móti Emmu Roberts í væntanlegri seríu af American Horror Story
Kim Kardashian mun leika á móti Emmu Roberts í væntanlegri seríu af American Horror Story Getty/Phillip Faraone/Rachel Luna

Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kim Kardashian er óhrædd við að takast á við ný og jafnvel ógnvekjandi verkefni, ef marka má nýjustu færslu hennar á samfélagsmiðlinum Instagram. Þar kom fram að Kim fari með hlutverk í væntanlegri seríu af hryllingsþáttunum American Horror Story.

Er um að ræða tólftu seríu af þessum vinsælu þáttum sem leikstýrt er af Ryan Murphy. Auk American Horror Story er Murphy þekktur fyrir þætti á borð við Glee, Pose, Scream Queens og hina mjög svo umdeildu seríu Dahmer - Monster: The Jeffrey Dahmer Story.

Undirtitill þessarar seríu af American Horror Story er Delicate og að sögn The Hollywood Reporter er hún að hluta til byggð á væntanlegri skáldsögu eftir Danielle Valentine, Delicate Condition.

Reynsluboltinn Emma Roberts verður með Kim í þáttunum en hún hefur unnið mikið með Murphy og leikið stór hlutverk í fyrri seríum.

Ryan Murphy og Emma Roberts hafa unnið mikið saman í gegnum tíðina.Jeff Vespa/Getty Images

Kim er ekki fyrsta súperstjarnan sem landar hlutverki í þáttunum og má þar nefna að Lady Gaga lék í fimmtu seríunni, American Horror Story: Hotel. American Horror Story er líklega vinsælasta verkefni sem Ryan Murphy hefur unnið að en þættirnir hafa fengið yfir 100 Emmy tilnefningar og unnið 13 styttur hingað til.

Murphy virðist mjög spenntur að vinna með Kim og á hún að hafa heillað hann með uppistandi sínu á Saturday Night Live árið 2021.

„Kim er meðal stærstu og skærustu sjónvarpsstjörnum heimsins og við erum í skýjunum að fá að bjóða hana velkomna í AHS fjölskylduna. Ég og Emma erum spennt að vinna með þessu kraftmikla menningarafli sem Kim er. 

Halley Feiffer, handritshöfundurinn, er búin að skrifa skemmtilegt, smart og mjög ógnvekjandi hlutverk sérstaklega fyrir Kim og þessi sería verður metnaðarfull og ólík öllu sem við höfum áður gert,“ kemur fram í tilkynningu frá Murphy.

Ætlað er að tökur hefjist nú í apríl en í sumar kemur nánar í ljós hvenær þættirnir verða sýndir.


Tengdar fréttir

Kampakát Kim kom á óvart í SNL

Kim Kardashian West þykir hafa staðið sig merkilega vel í Saturday Night Live um helgina. Hún var fengin til að stýra þættinum og gerði hún meðal annars stólpagrín að sjálfri sér og fjölskyldu sinni.

Emma Roberts á von á strák

Leikkonan Emma Roberts á von á sínu fyrsta barni með leikaranum, módelinu og söngvaranum Garrett Hedlund. Roberts tilkynnti á Instagram í gær að hún gengi með strák.

Selja gleraugu Dahmers fyrir morðfjár

Kanadískir safnarar hafa sett gleraugu sem bandaríski fjöldamorðinginn Jeffrey Dahmer var með í fangelsi á sölu. Einn þeirra segir gleraugun og aðra muni fjöldamorðingjans koma frá fyrrverandi heimilishjálp föður Dahmer.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×