Árásarmaðurinn fyrrverandi starfsmaður bankans Kristinn Haukur Guðnason skrifar 10. apríl 2023 14:44 Frá vettvangi í Louisville Lögreglan í borginni Louisville í Kentucky fylki hefur staðfest að „fjöldi manns“ hafi fallið í skotárás. Búið er að loka af götunni East Main í miðborg Louisville og fólk beðið að halda sig fjarri. En árásin átti sér stað í banka nálægt Slugger Field hafnaboltavellinum og Kentucky International ráðstefnuhöllinni.
BBC greinir frá því að 5 séu látnir og 6 slasaðir. Lögreglan hefur þegar sagt að búið sé að gera árásaraðilann „óvirkan“ og að ekki sé lengur hætta af honum. BBC greinir frá því að hann sé einn hinna látnu. Um töluvert stóra lögregluaðgerð var að ræða. Þurfti staðarlögreglan að leita til alríkislögreglunnar, FBI, um aðstoð. „Biðjum fyrir fjölskyldum þeirra sem urðu fyrir árásinni og fyrir allri Louisville borg,“ sagði ríkisstjórinn Andy Beshear, sem var á leiðinni á staðinn. Sjálfur segist hann hafa misst tvo vini í árásinni. Borgarstjórinn, Craig Greenberg, var þegar mættur á svæðið. Á blaðamannafundi lögreglunnar, sem haldinn var rétt í þessu, kom fram að lögreglan telur að árásarmaðurinn hafi verið einn að verki. Hann hafi verið fyrrverandi starfsmaður bankans. Lögreglan var mætt á svæðið þremur mínútum eftir að tilkynning barst klukkan 8:30 að staðartíma. Þegar lögreglan mætti var árásarmaðurinn að skjóta úr byssu sinni. Var hann skotinn og lést á staðnum. Fréttin var uppfærð klukkan 15:22
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent „Ég var skelfingu lostinn“ Innlent Bandarísk herflugvél fórst í Írak Erlent Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Erlent Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Innlent Fleiri fréttir Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Fjórir dánir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Sjá meira