Fótbolti

Arnór og Arnór á skotskónum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Arnór Sigurðsson reimdi á sig markaskóna í dag.
Arnór Sigurðsson reimdi á sig markaskóna í dag. Norrköping

Arnór Ingvi Traustason og Arnór Sigurðsson skoruðu báðir í 3-0 útisigri Norrköping á AIK í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hákon Rafn Valdimarsson varði mark Elfsborg sem gerði markalaust jafntefli við Varberg.

Arnór Ingvi hóf leikinn á miðjunni hjá Norrköping á meðan Arnór Sigurðsson var á vinstri vængnum. Andri Lucas Guðjohnsen var svo á bekknum hjá Norrköping.

Christoffer Nyman kom Norrköping þegar hálftími var liðinn. Tíu mínútur síðar skoraði Arnór Ingvi eftir vel útfærða aukaspyrnu. Staðan því 2-0 þegar flautað var til hálfleiks.

Þegar tuttugu mínútur lifðu leiks kom Andri Lucas inn af bekknum. Það var hins vegar Arnór Sig sem tryggði öruggan sigur þegar átta mínútur lifðu leiks með frábæru marki eftir góðan undirbúning. Lokatölur 3-0 Norrköping í vil.

Hákon Rafn  stóð vaktina í marki Elfsborg sem var að sætta sig við jafntefli á útivelli gegn Varberg. Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn af bekknum hjá Elfsborg í síðari hálfleik en náði ekki að setja mark sitt á leikinn.

Norrköping er með 4 stig eftir tvo leiki á meðan þetta var fyrsta stig Elfsborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×