Innlent

„Sjokkeruð“ að barnið hafi verið sett út og skilið eftir án athugunar

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Móðir ellefu ára stúlku er hugsi yfir því að enginn skuli hafa athugað með líðan stúlkunnar sem var ein um borð í Strætó sem sat fastur í fjórar klukkustundir á Hellisheiði í gær.
Móðir ellefu ára stúlku er hugsi yfir því að enginn skuli hafa athugað með líðan stúlkunnar sem var ein um borð í Strætó sem sat fastur í fjórar klukkustundir á Hellisheiði í gær. Vísir/Aðsend/Vilhelm

Móðir 11 ára stúlku sem sat föst í fjóra klukkutíma á Hellisheiði ásamt öðrum farþegum í Strætó er fegin að stúlkan sé heil á húfi eftir mikla óvissu gærkvöldsins. Hún er þó hugsi yfir því að enginn hafi hugað að stúlkunni sem var auðsýnilega ein síns liðs í Strætó í erfiðum aðstæðum, ekki einu sinni bílstjórinn. Barnið hafi þurft stuðning í ógnvænlegum aðstæðum að sögn móður.

Auður Ásbjörnsdóttir er móðir 11 ára stúlku sem er ein af þeim sem lentu í vandræðum upp á heiði í gær. Stúlkan hafði síðastliðna helgi dvalið hjá vinafólki á Selfossi, líkt og hún hafi gert vandræðalaust áður, og var á leið aftur til borgarinnar með Strætó þegar loka þurfti heiðinni.

„Við vorum búin að fylgjast með veðrinu en treystum því að Strætó vissi best um að það væri óhætt aðfara og svo frétti ég bara hálftíma eftir að hún lagði af stað að það væri allt stopp og það væri búið að loka heiðinni og að Strætó væri fastur þar og svo tók við ótrúlega margir klukkutímar af óvissu af því að við náðum engu sambandi við Strætó,“ segir Auður.

Þjónustusími Strætó er ekki opinn um helgar en þegar nokkuð var liðið á ferðina varð farsími dóttur Auðar rafmagnslaus.

„Þá kom náttúrulega pínu „panic“ ástand á foreldrana þegar við náðum ekki í hana lengur og þá settum við inn færslu á Facebook og óskuðum eftir því að fá að vita hvort það væri einhver um borð í þessari rútu þannig að við gætum komist í samband við stelpuna en skömmu eftir að við settum hana inn þá hringdi stelpan en þá var hún komin í Mjódd og hafði bara verið sett út þar og hún þurfti að hnippa í einhvern vegfaranda til að fá lánaðan síma.“

„Sem betur fer þá mundi hún símanúmerið mitt og hafði kjark í að spyrja einhvern ókunnugan og biðja um að fá lánaðan síma og hringdi heim. En þegar við fórum að sækja hana þá sat hún þar ein greyið, við vorum svona svolítið „sjokkeruð“ yfir því líka að barnið hafi bara verið sett út og ekkert verið að fylgjast með því hvort hún væri í öruggum höndum.“

Stúlkan sjálf er „brött“ eftir þessar raunir en foreldrarnir dálítið skelkaðir.

„Við erum ennþá að jafna okkur á þessu en sem betur fer vorum við kannski ekki skelfingu lostin því við vissum að hún væri örugg og að hún myndi ekki verða úti uppi á heiði eða eitthvað svoleiðis en það var samt auðvitað andstyggilegt að vita ekki hvort hún væri skelfingu lostin eða hvað hún yrði þarna lengi. Hún var ekki með mat og þessi óvissa var erfið.“


Tengdar fréttir

Fluttu á annað hundrað manns af heiðinni

Björgunarsveitarfólk stóð í ströngu á Hellisheiði og í Þrengslum fram á kvöld. Verið var að hjálpa fólki sem hafði fest bíla sína og lent í óhappi en flestar sveitir eru komnar í hús.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×