„Formlegar viðræður eru nú hafnar, en bandalögin þrjú hafa ákveðið að ganga saman til kjaraviðræðna við viðsemjendur sína um ákveðna meginþætti kjarasamninga,“ segir í tilkynningu á síðu BHM.
Þar segir að þéttir fundir séu framundan og áherslan sé á að skila kjarabótum til alls félagsfólks.
„Sérstök áhersla er lögð á að leysa úr jöfnun launa milli markaða, sem er óuppgert frá 2016 þegar samkomulag var gert um breytingu á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna.“
Þá segir að fulltrúar samtakanna hafi haldið sameiginlegan fund í morgun til að stilla saman strengi og veita formönnum gott veganesti í viðræðurnar sem eru á dagskrá.