Bíllinn var á leið að flugvél Icelandair, sem var lent um klukkan sex í morgun, þegar hurð fauk af hjörunum, að sögn farþega í vélinni. Farþegar sitja enn fastir inni í vélinni.
Að sögn Guðjóns Helgasonar, upplýsingafulltrúa Isavia, er bálhvasst á vellinum. Vindur hafi hraðastur mælst sjötíu hnútar [um 36 metrar á sekúndu] í hviðum. Til samanburðar nefnir Guðjón að hámarksvindhraði fyrir notkun landganga sé fimmtíu hnútar. Þá segir hann að bíllinn hafi ekki verið á vegum Isavia.
Greint var frá því í morgun að um átta hundruð farþegar væri í flugvélum sem ekki hefur verið unnt að rýma eftir að þeim var lent í morgun.