Jón Axel með tíu stig í sigri Pesaro Smári Jökull Jónsson skrifar 15. janúar 2023 18:05 Jón Axel í leik með Pesaro. Vísir/Getty Jón Axel Guðmundsson átti fínan leik fyrir lið Pesaro í ítölsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í dag. Pesaro vann góðan tólf stiga útisigur á Givova Scafati.
Jón Axel gekk til liðs við lið Pesaro fyrr í vetur eftir að hafa gert stutt stopp hjá uppeldisfélagi sínu Grindavík og leikið með þeim tvo leiki í haust. Fyrir leikinn var lið Pesaro með átta sigra í fjórtán leikjum og sátu í 5.-7.sæti deildarinnar en Givova Scafati var í 11.sæti með sex sigra. Leikurinn í dag var nokkuð sveiflukenndur. Jón Axel og félagar leiddu með tíu stigum eftir fyrri hálfleikinn en í þriðja leikhluta bitu heimamenn í liði Givova Scafati heldur betur frá sér og komu sér í þriggja stiga forystu fyrir lokaleikhlutann. Þar voru síðan gestirnir sterkari. Þeir unnu leikhlutann 29-14 og leikinn með tólf stigum, lokatölur 81-69. Jón Axel lék í 30 mínútur í leiknum og skoraði tíu stig, þar af þrjár þriggja stiga körfur. Hann var með 17 í +/- tölfræði sem þýðir að lið Pesaro vann mínúturnar sem hann spilaði með sautján stigum, það var það næsthæsta hjá liðinu í dag. Pesaro er nú í 4.sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Emporio Armani Milano.
Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM Fótbolti McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Fleiri fréttir LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Sjá meira