Handbolti

Góður leikur Arons ekki nóg gegn Kiel

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Aron lék vel í kvöld.
Aron lék vel í kvöld. Frank Molter/Getty Images

Aron Pálmarsson átti góðan leik fyrir Álaborg þegar þýska stórliðið Kiel kom í heimsókn í Meistaradeild Evrópu. Það dugði þó ekki til sigurs en Kiel vann með fjórum mörkum, 26-30. Þá átti Bjarki Már Elísson fínan leik í liði Veszprém sem gerði jafntefli við Dinamo Búkarest.

Kiel reyndist of stór biti fyrir Álaborg í kvöld. Aron átti þó einkar góðan leik og skoraði fjögur mörk ásamt því að gefa fjórar stoðsendingar. Það dugði þó ekki þar sem heimaliðið skoraði aðeins 26 mörk gegn 30 mörkum gestanna.

Álaborg er í 6. sæti B-riðils með aðeins sjö stig að loknum 10 leikjum.

Bjarki Már gerði fjögur mörk í 31-31 jafntefli Veszprém gegn Dinamo Búkarest á útivelli. Veszprém jafnaði París Saint-Germain að stigum á toppi A-riðils með jafntefli kvöldsins, bæði lið með 16 stig að loknum 10 leikjum.

Bjarki Már átti fínan leik að venju.Handballveszprem.hu

Hvorki Viktor Gísli Hallgrímsson né Haukur Þrastarson léku með sínum liðum vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×